Elkem gangsetur framleiðslulínu eftir endurbætur
Uppfært:
Innslætti á ofni 2 seinkaði um 1 dag. Áætlað er að hann verði endurræstur seinnipartinn í dag, 7. maí.
Endurbótum á ljósbogaofni í kísilmálmverksmiðju Elkem á Íslandi á Grundartanga er lokið og áætlað er að ofninn verði endurræstur á morgun, þriðjudaginn 6. maí.
Ofninn er einn af þremur í verksmiðjunni og gera áætlanir ráð fyrir framleiðslu á kísilmálmi í ofninum næstu 15 til 20 árin.
Elkem á Íslandi framleiðir hágæða kísilmálm og fer megnið af honum í rafmagnsstál og annan búnað sem bætir orkunýtingu rafmótora, t.d. í rafbílum og vindmyllum sem gerir framleiðsluvörur fyrirtækisins mikilvæg fyrir þau orkuskipti sem heimurinn stendur í dag frammi fyrir í dag.
Íbúar verða varir við útblástur
Íbúar og starfsmenn í fyrirtækjum í grennd við Grundartanga og víðar verða varir við útblástur frá fyrirtækinu í allt að tíu daga eftir gangsetningu. Ekki er ástæða til að óttast útblásturinn en sjónmengun er fyrirséð.
Elkem á Íslandi biðst velvirðingar á þeim óþægindum sem endurræsingin kann að valda og er fólk hvatt til að hafa samband vakni einhverjar spurningar, annað hvort í síma 432 0200 eða í tölvupósti á netfangið sigurjon.svavarsson@elkem.com.