Eldvarnareftirlitsmaður með áherslu á fræðslu og forvarnir
Slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar óskar eftir að ráða tímabundið til eins árs metnaðarfullan og öflugan einstakling í fullt starf eldvarnareftirlitsmanns með áherslu á fræðslu- og forvarnarstarf.
Um er að ræða fjölbreytt og mikilvægt starf þar sem lögð er áhersla á að efla eldvarnir, auka öryggisvitund almennings og stuðla að fækkun slysa og bruna. Starfið snýst bæði um eftirlit, ráðgjöf og jákvæða forvörn og hentar einstaklingi sem hefur áhuga á öryggismálum, fræðslu og samskiptum við fjölbreytta hópa.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Jens Heiðar Ragnarsson í síma 854 1277 eða með tölvupósti á netfangið jens.heidar.ragnarsson@akranes.is.
Um tímabundið starf til eins árs er að ræða með möguleika á fastráðningu.
Umsóknum skal fylgja starfsferilsskrá ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir áhuga á starfinu og hæfni til að sinna því.
Öll áhugasöm eru hvött til að sækja um.
Sótt er um starfið í gegnum alfred.is