Fara í efni

Ljósmyndasýning Áskels Þórissonar - Einn kjóll og nítján myndir

Ljósmyndasýningin Einn kjóll og 19 myndir var opnuð á dögunum í Galleríi Göngum í Háteigskirkju.
Þar er til sýnis fjöldi nærmynda úr íslenskri náttúru, en Áskell Þórisson er maðurinn að baki sýningunni.

Sýningin er opin mánudaga til fimmtudaga milli klukkan 10 og 16, á föstudögum á milli 10 og 15 og á morgun, laugardag, verður hún opin milli klukkan 13 og 16, og þá verður Áskell á staðnum.

Nánari viðtal við Áskel Þórisson má sjá  í Fréttablaðinu í dag.