Efnistökusvæði í Hvalfjarðarsveit - Skipulagslýsing
Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkti 25. febrúar 2026 að auglýsa skipulagslýsingu fyrir breytingu á Aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 skv. 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. gr. laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021, fyrir efnistökusvæði í Hvalfjarðarsveit.
Sveitarfélagið hefur gert úttekt á efnismagni sem unnið hefur verið í níu stærstu efnistökusvæðunum og hyggst sveitarfélagið gera breytingar á gildandi aðalskipulagi í samræmi við niðurstöðu vinnunnar, þar sem þess gerist þörf. Samhliða þessu mögulegt svæði fyrir efnislosun á óvirkum úrgangi.
Kynningartími tillögunnar er frá 26. febrúar – 20. mars 2026.
Tillagan er auglýst á heimasíðu sveitarfélagsins og til sýnis í Skipulagsgátt Skipulagsstofnunar (hér).
Hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemd við tillöguna á kynningartíma. Athugasemdum skal skilað inn rafrænt í Skipulagsgátt. Ef óskað er nánari kynningar á tillögunum skal bóka tíma hjá skipulagsfulltrúa.
Umhverfis- og skipulagsdeild