Fara í efni

Dagur reykskynjarans er í dag

Árlegt forvarnarátak Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna (LSS) og HMS hófst í dag og mun átakið vara út desember. Með forvarnarátakinu er verið að hvetja fólk til að huga að mikilvægasta öryggistæki heimilisins, reykskynjaranum.

Andlit átaksins í ár er Sandra Sigurðardóttir, landsliðsmarkvörður í fótbolta, og er afar kærkomið að fá svona flotta og öfluga fyrirmynd með í lið til að vekja athygli á þessu mikilvæga öryggistæki.

Ekki bíða - skiptu núna

Það er nauðsynlegt að huga að reykskynjaranum að lámarki einu sinni á ári og skipta um rafhlöðu svo hann sinni sínu hlutverki. Það er góð regla að skipta um rafhlöðu 1. desember ár hvert. Það er um að gera að virkja börnin í það verkefni og leyfa þeim að taka þátt til að virkja vitund þeirra á brunavörnum heimilisins.

Skerandi hljóðið frá reykskynjaranum á að vekja upp varnarviðbrögð hjá okkur og fá okkur til að bregðast við aðstæðum. Það þýðir að ef reykskynjarinn pípir þá þarf að bregðast við, ekki bíða með að skipta um rafhlöðu gerðu það strax.

Reykskynjari í öllum herbergjum
Það er mikilvægt í nútímasamfélagi að hafa reykskynjara í öllum rýmum og herbergjum heimilisins þar sem við erum með rafmagnstæki á mörgum stöðum. Það er mikilvægt að staðsetja hann rétt, best er að hafa hann fyrir miðju lofts og gæta skal þess að staðsetja hann að lámarki í 30 cm fjarlægð frá vegg eða ljósi.

Allar upplýsingar um reykskynjara og eldvarnir á heimilinu má finna á vefsíðunni www.vertueldklar.is. HMS og LSS hvetja alla landsmenn til að kynna sér málin þar inni og fara yfir brunavarnir á heimilinu, það getur skipt sköpum og bjargað mannslífum.

Vertu ELDKLÁR!

  • Er reykskynjari í öllum rýmum?
  • Þekkir heimilisfólk flóttaleiðir út af heimilinu?
  • Eru slökkvitæki eiga aðstaðsett við útgang og flóttaleiðir?
  • Er eldvarnateppi aðgengilegt og sýnilegt í eldhúsi?