Dagskrá Hvalfjarðardaga 2026
Nú styttist óðum í Hvalfjarðardaga og dagskrá hátíðarinnar er klár. Fram undan er fjölbreytt og skemmtileg hátíðarhelgi þar sem íbúum og gestum býðst að taka þátt í fjölmörgum viðburðum víðs vegar um Hvalfjarðarsveit.
Á meðal þess sem verður í boði eru litahlaup á vegum Ungmenna- og íþróttafélags Hvalfjarðarsveitar, heimatónleikar í Skipanesi, útitónleikar með Hreimi og Vigni Snæ í Álfholtsskógi, stærsta hindrunarbraut landsins á Vinavelli, sýning Leikhópsins Lottu á Litalandi, sýningar BMX Brósa, listarúntur og fleira.
Í tilefni af 20 ára afmæli Hvalfjarðarsveitar verða haldnir sérstakir afmælistónleikar í Hallgrímskirkju í Saurbæ þar sem flutt verður fjölbreytt tónlist og sérsamið afmælislag sveitarfélagsins verður frumflutt. Afmælisdagskráin heldur áfram með fyrirlestri í Miðgarði þar sem Haraldur Benediktsson, oddviti sveitarstjórnar, rekur sögu Hvalfjarðarsveitar.
Við hvetjum íbúa til að taka þátt í hátíðarhöldunum og skreyta heimili sín í rauðum og hvítum litum yfir helgina til að setja skemmtilegan svip á sveitarfélagið.
Skoðið dagskrána og takið dagana 13.–16. ágúst frá, við hlökkum til að sjá ykkur á Hvalfjarðardögum.
