Fara í efni

Brunaþéttingar - Námskeið á Akranesi 2. desember

Iðan fræðslusetur og Slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar halda námskeið í brunaþéttingum föstudaginn 2.desember 2022    kl 13:00.  Námskeiðið er haldið í húsnæði slökkviliðsins að Kalmansvöllum 2, Akranesi.

Námskeiðið er fyrir alla sem koma að byggingarframkvæmdum og þurfa að þétta milli brunahólfa. Markmið þess er að þátttakendur
kunni skil á reglum um brunaþéttingar og efni sem notuð eru til þeirra.

Námskeiðið er 4 klukkustundir.
Kennari er Guðmundur Gunnarsson, byggingarverkfræðingur.

Skráning og frekari upplýsingar eru á heimasíðu Iðunar
https://www.idan.is/fraedsla/nanar-um-namskeid/allotment/2022/12/02/Brunathettingar/?flokkur=Bygginga-+og+mannvirkjagreina

Fullt verð er 25.000 kr.
Verð til aðildarfélaga Iðunnar 5.000 kr.