Fara í efni

Brotajárnssöfnun - Átak

Átak í brotajárnssöfnun í Hvalfjarðarsveit!

Átak í hreinsun og tiltekt í Hvalfjarðarsveit, sem hófst síðastliðið haust, heldur nú áfram með áherslu á brotajárnssöfnun. Sveitarfélagið hefur hafið samstarf við Hringrás með það að markmiði að auðvelda íbúum, fasteignaeigendum og fyrirtækjum að losa sig við brotajárn á ábyrgan og umhverfisvænan hátt.

Þjónustan stendur til boða bæði í dreifbýli og þéttbýli og er gjaldfrjáls.

Hægt er að nýta sér þjónustuna með eftirfarandi hætti:

  • Leið 1 – Hirða á staðnum: Brotajárni er safnað saman á aðgengilegan stað og bíll kemur með krana og fjarlægir efnið.
  • Leið 2 – Gámaþjónusta: Séu aðstæður þannig að ekki sé hægt að haugsetja, er gámur afhentur á staðinn, brotajárni safnað og hann síðan sóttur að söfnun lokinni.

Undir brotajárn falla allir málmar, svo sem bárujárn, bílhræ, mótorar og girðinganet án óhreininda. Einnig er heimilt að losa sig við dekk. Mikilvægt er að efnið sé laust við rusl og óhreinindi.

Verktaki hefur samband við skráða aðila áður en komið er á staðinn.

Ef um er að ræða ökutæki til förgunar þarf að tryggja að það hafi verið afskráð fyrirfram. Afskráning fer fram rafrænt á Island.is og nánari upplýsingar má nálgast þar eða hjá Samgöngustofu.

Skráning og pantanir fara fram beint hjá Hringrás í síma: 550-1900 og afgreidsla@hringras.is. 

Fyrirspurnir má senda á umhverfi@hvalfjardarsveit.is eða í síma skrifstofu sveitarfélagsins 433-8500.

Hjálpumst að við að halda sveitarfélaginu hreinu og snyrtilegu!

Umhverfis- og skipulagsdeild