Fara í efni

Breyttur fundardagur sveitarstjórnar

Á 354. fundi sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar var samþykkt breyting á föstum fundardegi sveitarstjórnar sem fram til þessa hafa verið annan og fjórða þriðjudag hvers mánaðar. Frá og með júlímánuði 2022 mun reglubundinn fundartími sveitarstjórnar hins vegar verða annan og fjórða miðvikudag hvers mánaðar kl. 15:00. Fundir sveitarstjórnar fara fram í stjórnsýsluhúsinu, Innrimel 3, Melahverfi.

Næsti reglubundni fundur sveitarstjórnar verður haldinn þriðjudaginn 28. júní nk. kl. 15:00 og að honum loknum færist fastur fundartími yfir á miðvikudaga, sá fyrsti miðvikudaginn 13. júlí nk. kl. 15:00.