Fara í efni

Breytingar á móttökustöð úrgangs frá 1. mars nk.

Frá og með 1. mars. nk. verður lokað fyrir aðgengi að móttökustöð Terra við Höfðasel, Akranesi, sökum innleiðingar nýrrar aðgangsstýringar að þjónustunni eða “appi”.

Meðan unnið er að framtíðarlausn fyrir Hvalfjarðarsveit verður eftirfarandi ráðstöfun gerð tímabundið í mars og apríl:

13. og 14. mars  - Timbur og málmar - gámar staðsettir á grenndarstöð í Melahverfi.

26. og 27. mars - Raftæki og spilliefni – sótt að heimili - gjaldfrjálst - pantanir berist á skrifstofu Hvalfjarðarsveitar fyrir 24. mars nk.

10. og 11. apríl - Grófur úrgangur og dekk – gámar staðsettir á grenndarstöð í Melahverfi.

23. og 24. apríl - Raftæki og spilliefni – sótt að heimili - gjaldfrjálst - pantanir berist á skrifstofu Hvalfjarðarsveitar fyrir 21. apríl nk.

Að auki er bent á móttökustöðina í Borgarnesi, Sólbakka 12 og svæði Íslenska Gámafélagsins á Kalksléttu (Esjumelum).
Greitt er skv. gjaldskrá.

Ítrekað er að einungis er um tímabundna ráðstöfun að ræða meðan unnið er að framtíðarlausn en sú vinna stendur yfir.

Fyrir frekari upplýsingar eða ábendingar vinsamlegast hafið samband við skrifstofu Hvalfjarðarsveitar.