Borun rannsóknarholu á Grundartanga
Á Grundartanga hefur á undanförnum vikum staðið yfir borun rannsóknarholu með stuðningi frá Orku- og loftslagssjóði, með það fyrir augum að kanna hvort jarðlög á svæðinu henti til framtíðargeymslu á koldíoxíði (CO₂).
Að verkefninu standa Carbfix, Elkem, Norðurál og Þróunarfélag Grundartanga og er ætlunin að afla mikilvægra upplýsinga um eiginleika berggrunnsins og möguleika á niðurdælingu og varanlegri bindingu CO₂ frá svæðinu á síðari stigum.
Verkefninu er m.a. ætlað að hafa umtalsverð jákvæð áhrif í að minnka losun gróðurhúsalofttegunda og gæti eflt samkeppnisstöðu svæðisins en hvoru tveggja er í takt við Atvinnustefnu stjórnvalda.
Föstudaginn 16. október sl., lauk boruninni og var þá holan komin í 1.504 metra dýpi.
Í framhaldinu var unnið að gerð rennslismælinga og ádælingarprófs ásamt því að rýna í fyrstu niðurstöður.
Unnið er að tilheyrandi rannsóknum í tengslum við verkefnið og er stefnt að því að frekari niðurstöður liggi fyrir í nóvember næstkomandi.
Grundartangi er stærsta iðnaðarsvæði á Vesturlandi og eitt öflugasta atvinnusvæði á Vesturlandi með margþætta starfsemi og á vettvangi Þróunarfélagsins á Grundartanga hefur verið unnið að hringrásar- og sjáfbærnihugsun á svæðinu í anda græns iðngarðs, þar sem m.a. afgangsafurðir frá einu fyrirtæki geta orðið hráefni þess næsta og þegar eru dæmi um slíka samvinnu á svæðinu.
Það er því m.a. í þessu ljósi sem borun könnunarholunnar er mikilvæg í heildarsamhengi svæðisins en í því felst bæði græn hringrásarhugsun sem og tækifæri til fullnýtingar afurða á svæðinu og verður spennandi að sjá þegar heildarniðurstöður verkefnisins liggja fyrir.