Fara í efni

Bjarki Pétursson kjörinn íþróttamaður Borgarfjarðar 2020

Kjör á íþróttamanni ársins var með öðru sniði en undafarin ár. Ákveðið var að búa til myndband þar sem fjallað er um fyrstu fimm í kjörinu og farið yfir aðra í stafrófsröð. Mjög öflugur hópur íþróttamanna var í kjörinu og árangurinn góður þrátt fyrir erfitt ár. Ungmennasamband Borgarfjaðrar óskar öllum þeim sem voru tilnefndir innilega til hamingju. Gaman verður að fylgjast með íþróttafólki innan Borgarfjaðrar á komandi ári. Myndband frá kjörinu má sjá hér

Bjarki Pétursson er Íþróttamaður Borgarfjarðar 2020. Er þetta því í sjötta sinn sem Bjarki hlýtur titilinn.

Bjarki Pétursson er kylfingur úr Borgarnesi sem keppir fyrir Golfklúbb Kópavogs og Garðabæjar. Bjarki átti mjög gott ár þar sem hann varð Íslandsmeistari í golfi 2020. Þar setti hann mótsmet með lægsta skor á Íslandsmóti frá upphafi. Einnig varð Bjarki Íslandsmeistari í liðakeppni með Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar. Vega covid komst Bjarki ekki á öll þau mót sem fyrir huguð voru en hann náði að keppa á Nordic League mótaröðinni. Þar varð hann meðal 10- 30 bestu kylfinga. Bjarki hefur á síðustu árum stigið fram sem einn af allra bestu kylfingum Íslands gaman verður að fylgjast með honum á næstu árum.

Kristín Þórhallsdóttir kraftlyftingar kona varð í öðru sæti.
Sigrún Sjöfn Ámundadóttir körfuboltakona varð í þriðja sæti
Alexandrea Rán Guðnýjardóttir kraftlyftingakona varð í fjórða sæti
Bjarni Guðmann Jónsson körfuboltamaður varð í fimmta sæti

Aðrir sem voru í kjörinu í stafrósröð

  • Brynjar Snær Pálsson, Borgarnesi, sem spilar fótbolta fyrir ÍA á Akranesi
  • Guðbjörg Bjartey Guðmundsdóttir, Bjarteyjarsandi í Hvalfirði, sem keppir í sundi fyrir ÍA á Akranesi
  • Guðrún Karítas Hallgrímsdóttir, Vatnshömrum í Andakíl sem keppir í sundi fyrir ÍR í Reykjavík.
  • Helgi Guðjónsson, Reykholti, sem spilar fótbolta fyrir Víking Reykjavík.
  • Kolbrún Katla Halldórsdóttir, Borgarnesi sem  keppir í hestaíþróttum fyrir hestamennafélagið Borgfirðing.
  • Marinó Þór Pálmason, Borgarnesi sem leikur  körfubolta hjá Skallagrími.
  • Sigursteinn Ásgeirsson,  Þorgautsstöðum, sem keppir í frjálsum íþróttum með ÍR í Reykjavík.

Viðurkenning úr minningarsjóði um Auðunn Hlíðkvist
Samhliða kjöri íþróttamanns Borgarfjarðar var veitt viðurkenning úr minningarsjóði um Auðunn Hlíðkvist. Auðunn var fæddur 1981 en lést 1995 þá var hann aðeins rúmlega 14 ára gamall. Auðunn stundaði flestar íþróttir sem voru í boði í Borgarnesi á þeim tíma en aðalgreinar hans voru knattspyrna, karfa og frjálsar. Hann var hæfileikaríkur íþróttamaður, góður námsmaður, hógvær og rólegur en bjó yfir miklum forystuhæfileikum. Allt kostir sem þarf til að prýða góðan íþróttamann. Í kjölfar andláts Auðuns var stofnaður minningarsjóður. Á hverju ári er íþróttamanni veitt viðurkenning úr sjóðnum. Í ár er það Valborg Bragadóttir sem fær viðurkenningu úr sjóðnum. Valborg er efnilegur íþróttamaður sem æfir körfubolta og fótbolta með Skallagrími.

Sjá nánar á vef UMSB