Fara í efni

Barnvænt sveitarfélag - spurningarkönnun 16-20 ára

Hvalfjarðarsveit vinnur að því að innleiða Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna inn í allt starf sveitarfélagsins. Innleiðingin fer fram í samstarfi við UNICEF á Íslandi og mennta- og barnamálaráðuneytið og mun Hvalfjarðarsveit geta öðlast viðurkenningu sem Barnvænt sveitarfélag að ákveðnum skilyrðum uppfylltum.

Haldið var barnaþing í Heiðarskóla á síðasta ári, sem er viðburður fyrir börn og unglinga þar sem hægt er að segja hugmyndir sínar og skoðanir varðandi alls konar málefni sem varða sveitarfélagið. Í þeim tilgangi að fá fram fjölbreytt sjónarmið ungmenna er óskað eftir svörum frá íbúum Hvalfjarðarsveitar á aldrinum 16 til 20 ára við þremur spurningum.
Svörin verða meðhöndluð í trúnaði.

Hægt er að svara spurningunum í gegnum íbúagátt sveitarfélagsins,
sjá hér https://hvalfjardarsveit.ibuagatt.is/form/M2zeIC9_aU2SiMj6j2rz_w

Endilega takið þátt, þín rödd skiptir máli!