Fara í efni

Barnvæn Hvalfjarðarsveit

Þann 1. júní 2026 var hátíðleg stund í Hvalfjarðarsveit þegar ungmennaráð tók við viðurkenningu frá UNICEF um að sveitarfélagið væri Barnvænt sveitarfélag. Viðurkenningarathöfnin fór fram í stjórnsýsluhúsinu í Melahverfi á sama degi og Hvalfjarðarsveit fagnaði 20 ára afmæli sínu.
Í tilefni dagsins fengu öll börn í leik- og grunnskólum sveitarfélagsins afhentar peysur merktar Hvalfjarðarsveit. Einnig var boðið upp á veitingar og söngatriði til að fagna þessum merka áfanga.

Hvalfjarðarsveit ritaði undir samkomulag við UNICEF og Mennta- og barnamálaráðuneytið í ágúst 2023 um að verða Barnvænt sveitarfélag og hefur þeim áfanga nú verið náð, eins og áður kom fram. Barnvæn sveitarfélög er verkefni sem styður sveitarfélög við að innleiða Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna í alla sína stjórnsýslu og starfsemi. Verkefnið byggir á alþjóðlegu verkefni UNICEF sem kallast Child Friendly Cities Initiative og hefur verið innleitt í hundruðum borga frá því árið 1996. Verkefnið hefur verið innleitt hér á landi undir nafninu Barnvæn sveitarfélög frá því árið 2016.

Verkefnið Barnvæn sveitarfélög er innleitt í átta skrefum sem hvert um sig styður við réttindi barna innan sveitarfélagsins.
Hér má sjá lokaskýrslu sveitarfélagsins.

Viðurkenning Barnvæns sveitarfélags gildir í þrjú ár frá því að hún er veitt. Því þarf sveitarfélagið að setja sér ný markmið og hefja nýtt stöðumat fljótlega eftir að viðurkenning er í höfn, ætli það sér að hljóta endurmat að þremur árum liðnum. Þá þarf sveitarfélagið að fara í gegnum innleiðingarferlið að nýju og ef vel gengur hlýtur það nýja viðurkenningu.

Fleiri myndir frá viðburði.