Fara í efni

Barnó 2026 opnar með pompi og prakt í Ólafsvík

Barnamenningarhátíð Vesturlands – Barnó 2026 verður formlega sett í Klifi í Ólafsvík fimmtudaginn 1. október kl. 18:00. Þar verður hátíðinni hleypt af stokkunum með skemmtilegri dagskrá, tónlist, gleði og að sjálfsögðu biluðu stuði! Barnó fer fram víðs vegar um Vesturland og í ár telur dagskráin hvorki meira né minna en 65 fjölbreytt atriði, ætluð börnum og ungmennum frá leikskólaaldri og upp í 18 ára.

Opnunarhátíðin er öllum opin og fjölskyldur eru sérstaklega hvattar til að mæta – og að sjálfsögðu að taka börnin með! Nánari upplýsingar um opnunarhátíðina og dagskrá Barnó má finna á viðburðasíðu opnunarhátíðíðarinnar
og á Facebook.

Lifi barnamenningin – því við erum BEST, MEST, VEST!