Fara í efni

Bakki og Skorholt - Færsla hitaveitulagnar

Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkti á fundi sínum 9. júlí 2026 óverulega breytingu á Aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 skv. 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. 

Breytingin tekur til breyttrar legu stofnlagnar hitaveitu og samhliða breytist lítilega afmörkun efnistöku- og efnislosunarsvæðanna Bakka (E1) og Skorholts (E27). Gerð er breyting á stofnlögn sem liggur frá Deildartunguhver inn á Akranes. Með breytingu er sýnd ný lega hitaveitulagnar á um 2 km löngum kafla, sem liggur um land Bakka og Skorholts, þar skilgreint landbúnaðarland (L2) og efnistökusvæði (E1). Samhliða breytist afmörkun og stærð námusvæða lítilega. Náma í landi Bakka (E1) verður tvískipt og minnkar sem samsvarar svæði undir stofnlögn en Skorholtsnáma stækkar sem samsvarar landi sem áður var undir lagnaleið. Gerð er breyting á greinargerð og uppdrætti.

Frekari upplýsingar og meðfylgjandi gögn eru í Skipulagsgátt, hér.