Auglýst eftir umsóknum í Menningarsjóð og Íþrótta- og æskulýðssjóð Hvalfjarðarsveitar
28. október 2026
Hvalfjarðarsveit auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Menningarsjóði og Íþrótta- og æskulýðssjóði.
Styrkirnir eru ætlaðir verkefnum og viðburðum sem fara fram á árinu 2027.
Umsóknin þarf að innihalda
- Markmið, lýsingu og tilefni umsóknar
- Styrkupphæð sem óskað er eftir
- Tíma- og verkáætlun
- Kostnaðaráætlun
- Upplýsingar um aðra fjármögnun
Heimilt er að vísa umsókn frá ef fullnægjandi gögn eða upplýsingar koma ekki fram.
Umsóknarfrestur er til og með 1. nóvember 2026. Umsóknir sem berast eftir þann tíma verða ekki teknar til afgreiðslu. Nefndirnar afgreiða umsóknirnar eigi síðar en 31. desember 2026.
Umsóknir skulu berast í gegnum Þjónustugátt á vefsíðu Hvalfjarðarsveitar. Umsóknirnar má finna undir 11 – Styrkumsóknir.
Úthlutunarreglur sjóðanna má finna á vef Hvalfjarðarsveitar.
Frekari upplýsingar eru veittar í netfanginu andrea@hvalfjardarsveit.is.