Fara í efni

Auglýst eftir umsóknum í Menningarsjóð og Íþrótta- og æskulýðssjóð Hvalfjarðarsveitar

Samkvæmt samþykktum sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar er hér með auglýst eftir umsóknum í ofangreinda sjóði Hvalfjarðarsveitar.
Styrkumsóknir skulu vera í samræmi við reglur sjóðanna sem finna má á heimasíðu Hvalfjarðarsveitar:
https://www.hvalfjardarsveit.is/ is/thjonusta/ithrottir-og-tomstundamal/ithrotta-aeskulyds-og-menningarmal-samthreglur

Umsóknir skulu undirritaðar af umsækjanda og/eða aðila sem heimild hefur til að undirrita umsókn fyrir hönd umsækjanda ef um félag eða hópa er að ræða. Mikilvægt er að greinargóðar upplýsingar komi fram í umsókninni og fylgigögnum hennar, eins og óskað er eftir sbr. reglur sjóðanna.

Til að uppfylla skilyrði styrkveitingar þarf eftirfarandi að koma fram í umsókn:
Markmið, lýsing og tilefni umsóknar
Styrkupphæð sem óskað er eftir
Tíma- og verkáætlun
Kostnaðaráætlun
Önnur fjármögnun
Félög og/eða hópar sendi inn ársreikning síðastliðins árs og fjárhagsáætlun yfirstandandi árs.
Heimilt er að vísa frá umsóknum ef fullnægjandi gögn/upplýsingar koma ekki fram.

Umsóknarfrestur í sjóðina er til og með 1. apríl 2026.
Úthlutun verður lokið fyrir 1. júní 2026 skv. reglum sjóðanna.

Umsóknir skulu berast í gegnum Þjónustugátt á vefsíðu sveitarfélagsins www.hvalfjardarsveit.is.
Umsóknirnar er hægt að finna undir 11 – Styrkumsóknir.

Einnig er hægt að hafa samband við netfangið fristund@hvalfjardarsveit.is