Fara í efni

Auglýst eftir umsóknum í Menningarsjóð Hvalfjarðarsveitar og Íþrótta-og æskulýðssjóð Hvalfjarðarsveitar.

 

Styrktarsjóður Hvalfjarðarsveitar hefur verið lagður niður og í hans stað hafa verið stofnaðir 

tveir nýir sjóðir sem taka við hlutverki Styrktarsjóðsins, Menningarsjóður Hvalfjarðarsveitar og 

Íþrótta-og æskulýðssjóður Hvalfjarðarsveitar. Menningarsjóður er í umsjón Menningar- og 

markaðsnefndar Hvalfjarðarsveitar og Íþrótta- og æskulýðssjóður er í umsjón Fjölskyldu- og 

frístundanefndar Hvalfjarðarsveitar. 

 

Úthlutað verður úr hinum nýju sjóðum einu sinni á ári og skal úthlutunum lokið fyrir 1. júní ár 

hvert. Reglur nýju sjóðanna má finna á heimasíðu sveitarfélagsins www.hvalfjardarsveit.is

 

Nú er auglýst eftir umsóknum í sjóðina, umsóknareyðublöð eru á heimasíðu sveitarfélagsins. 

 

Styrkumsóknir skulu undirritaðar af umsækjanda og/eða aðila sem heimild hefur að undirrita 

umsókn fyrir hönd umsækjanda ef um félag eða hópa er að ræða. Mikilvægt er að greinargóðar 

upplýsingar komi fram í umsókninni og fylgigögnum hennar, eins og óskað er eftir sbr. reglur 

sjóðanna. Heimilt er að vísa frá umsóknum ef fullnægjandi gögn/upplýsingar koma ekki fram. 

 

Umsóknarfrestur í sjóðina er til og með 1. apríl 2019. 


Umsóknir skulu berast til: Umsóknir skulu berast til:
Menningarsjóður Hvalfjarðarsveitar Íþrótta-og æskulýðssjóður Hvalfjarðarsveitar
Stjórnsýsluhúsinu Stjórnsýsluhúsinu
Innrimel 3 Innrimel 3
301 Akranes 301 Akranes
eða á netfangið: eða á netfangið:
hvalfjardarsveit@hvalfjardarsveit.is hvalfjardarsveit@hvalfjardarsveit.is