Fara í efni

Auglýsing vegna sveitarstjórnarkosninga í Hvalfjarðarsveit 16. maí 2026

Opnað hefur verið fyrir rafræna meðmælendasöfnun fyrir framboð til sveitarstjórnar á vef Ísland.is
Stofna meðmælasöfnun vegna framboðs til sveitarstjórnar | Ísland.is

Öll framboð eru hvött til að nýta rafrænt meðmælendakerfi og mælst er til þess að oddvitar framboða stofni söfnun en nafn þeirra og fæðingardagur birtist sem stofnandi söfnunar.

Jafnframt er heimilt að safna meðmælum á pappír en mælst er til þess að þau séu slegin inn í rafræna meðmælendakerfið áður en frumritum meðmælanna er skilað inn ásamt framboðstilkynningu.
Sjá sniðmát að söfnun meðmæla á pappír sem framboð geta nýtt sér Medmaeli-pappir-Sveitarstjorn-2026.pdf

Unnt er að mæla með framboðum hér Mæla með framboði í sveitarstjórnarkosningum 2026 | Ísland.is

Framboðsfrestur rennur út kl. 12 á hádegi föstudaginn 10. apríl 2026.

Framboðslistum og öðrum gögnum skal skila til kjörstjórnar fyrir lok framboðsfrests.

Gögnum má skila til hvaða kjörstjórnarmanns sem er eða til kjörstjórnar, sem verður í Stjórnsýsluhúsinu við Innrimel 3 kl. 11-12 föstudaginn 10. apríl nk.

Sveitarstjórnarmenn sem hyggjast skorast undan endurkjöri skulu tilkynna þá ákvörðun til kjörstjórnar fyrir lok framboðsfrests.

Nánari upplýsingar og leiðbeiningar er að finna á vefnum www.kosning.is

F.h. kjörstjórnar í Hvalfjarðarsveit,

Guðmundur Ólafsson, Lambhaga 2, sími 896-6613
Jóna Björg Kristinsdóttir, Áshamri, sími 894-6965
Ásta Marý Stefánsdóttir, Skipanesi, sími 842-4383