Fara í efni

Auglýsing vegna sveitarstjórnarkosninga í Hvalfjarðarsveit 14. maí 2022

Framboðsfrestur rennur út kl. 12 á hádegi föstudaginn 8. apríl 2022.

Framboðslistum og öðrum gögnum skal skila til kjörstjórnar fyrir lok framboðsfrests.

Gögnum má skila til hvaða kjörstjórnarmanns sem er eða til kjörstjórnar, sem verður í Stjórnsýsluhúsinu við Innrimel 3 kl. 11-12 föstudaginn 8. apríl.

Sveitarstjórnarmenn sem hyggjast skorast undan endurkjöri skulu tilkynna þá ákvörðun til kjörstjórnar fyrir lok framboðsfrests.

Nánari upplýsingar og leiðbeiningar er að finna á vefnum www.kosning.is

5. apríl 2022, f.h. kjörstjórnar í Hvalfjarðarsveit,

Guðmundur Ólafsson, Lambhaga 2, sími 896-6613
Jóna Björg Kristinsdóttir, Áshamri, sími 894-6965