Fara í efni

Auglýsing á breytingu deiliskipulags í landi Vatnaskógs.

Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkti á fundi sínum þann 8.október 2019  að auglýsa breytingartillögu á deiliskipulagi fyrir Vatnaskóg í Hvalfjarðarsveit sbr. 1.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

 Um er að ræða breytingu sem felur í sér að svæði sem er skilgreint leiksvæði í gildandi deiliskipulagi verði breytt í byggingarsvæði fyrir matskála og eldhús.  Heildar byggingarmagn á reit B13 er 393 m². 

 Deiliskipulagstillagan liggur frammi á skrifstofu Hvalfjarðarsveitar og einnig á heimasíðu sveitarfélagsins Vatnaskógur - Skipulagsuppdráttur 24.9.2019.
Kynningarfundur verður á skrifstofu Hvalfjarðarsveitar föstudaginn 25.október frá kl. 10:00 – 12:00

 Athugasemdum skal skilað fyrir 30. nóvember 2019 til skrifstofu Hvalfjarðarsveitar,  Innrimel 3, 301 Akranes, eða á netfangið skipulag@hvalfjardarsveit.is merkt ”Vatnaskógur”.  

Skipulags og umhverfisfulltrúi Hvalfjarðarsveitar
Bogi Kristinsson Magnusen