Fara í efni

Atvinnumál kvenna: opið fyrir umsóknir til 1. mars

Styrkjum til atvinnumála kvenna er úthlutað einu sinni á ári en þeir eru ætlaðir konum sem eru að vinna að viðskiptahugmynd eða þróa verkefni.  Markmiði er að auka aðgengi frumkvöðlakvenna að fjármagni. Að þessu sinni eru frumkvöðlakonur á landsbyggðinni og konur í atvinnuleit hvattar til að sækja um.  

Skilyrði er að verkefnið/hugmyndin falli að eftirfarandi:

  • Að verkefnið sé í meirihluta eigu konu/kvenna (51%) og stjórnað af konu
  • Að verkefnið feli í sér nýnæmi eða nýsköpun af einhverju tagi
  • Að verkefnið feli í sér atvinnusköpun til frambúðar

 Veittir eru styrkir til gerðar viðskiptaáætlunar (600.000 kr.) ásamt styrkjum til markaðssetningar og vöruþróunar að hámarki 4.000.000 kr. Styrkir eru veittir fyrir helmingi af heildarkostnaði verkefna.

Nánari upplýsingar má sjá á heimasíðu SSV.is