Fara í efni

Ársreikningur Hvalfjarðarsveitar 2025

Á 439. fundi sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar þann 25. mars sl. var ársreikningur Hvalfjarðarsveitar fyrir árið 2025 samþykktur, sjá HÉR.

Rekstrarniðurstaða sveitarfélagsins samkvæmt ársreikningi A og B hluta var jákvæð um 467,1mkr. Rekstrartekjur Hvalfjarðarsveitar árið 2025 námu rúmum 1.675mkr. samkvæmt rekstrarreikningi fyrir A og B hluta en þar af námu rekstrartekjur A hluta tæpum 1.687mkr.

Rekstrargjöld A og B hluta árið 2025 voru alls 1.423,6mkr. Veltufé frá rekstri var 31,90% og veltufjárhlutfall 9,03%.

Heildareignir sveitarfélagsins í árslok 2025 voru 5.448,7mkr. og heildarskuldir námu 205mkr. og er þar einungis um skammtímaskuldir að ræða, engar langtímaskuldir.

Eigið fé sveitarfélagsins í árslok 2025 nam 5.243,8mkr. samkvæmt efnahagsreikningi og eiginfjárhlutfall var 96%.

Eitt af fjárhagslegum viðmiðum sveitarfélaga skv. sveitarstjórnarlögum er skuldaviðmið. Það er áfram jákvætt, fer úr 114,06% í 84,38% árið 2025 en veltufé er áfram umtalsvert hærra en skuldir. Rekstrarjöfnuður sveitarfélagsins síðustu þrjú ár (samanlögð rekstrarafkoma á þriggja ára tímabili) er 1.349,7mkr.

Rekstarniðurstaða ársins 2025 var tæpum 279mkr. jákvæðari en áætlun ársins gerði ráð fyrir og helgast það af hærri rekstrar- og útsvarstekjum sem og lægri rekstrarkostnaði en áætlaður var. Almennt voru einstaka málaflokkar og deildir innan áætlunar ársins 2025.

Handbært fé sveitarfélagsins, sem lækkar einungis um 217,3mkr. milli áranna 2024 og 2025, er rúmur 1,7 milljarður þann 31. desember 2025. Það er óneitanlega styrkur til fyrirhugaðrar framtíðarinnviðauppbyggingar skv. langtímaáætlun, s.s. lokafrágangs nýs íþróttahúss, byggingu nýs leikskólahúsnæðis, gatnagerðarframkvæmda, göngustígagerðar auk annarra framkvæmda. Styrk staða sveitarfélagsins varðar áfram þá vegferð sem unnið hefur verið út frá undanfarin tæpan áratug, að framkvæma án lántöku.

Heildarfjárfestingar sveitarfélagsins árið 2025 námu nettó 823,7mkr. en þar af voru 696,9mkr. til nýs íþróttahúss við Heiðarborg, 83,2mkr. til gatnagerðar, 20,9mkr. til göngustígagerðar, 15,4mkr. til nýs leikskólahúsnæðis og 7,4mkr. til opins svæðis í Krosslandi.

Hvalfjarðarsveit 25. mars 2026
Linda Björk Pálsdóttir
sveitarstjóri