Fara í efni

Ályktun sveitarstjórnar um atvinnumál í Hvalfjarðarsveit

Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar ályktaði um atvinnumál og framtíð hvalveiða á 450. fundi sínum sem haldinn var þann 29.september sl. svohljóðandi:

""Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar áréttar mikilvægi hvalveiða og þeirrar starfsemi sem þeim tengist fyrir atvinnulíf í Hvalfjarðarsveit og í nærliggjandi sveitarfélögum. Starfsemi hvalstöðvarinnar í Hvalfirði á sér langa sögu og hefur á starfstímum skapað fjölbreytt störf, bæði beint við veiðar og vinnslu og óbeint hjá þjónustu- og verktakafyrirtækjum á svæðinu.
Fyrir samfélag á borð við Hvalfjarðarsveit og nágrannasveitarfélög skiptir fjölbreytni og styrkur atvinnulífs miklu máli. Öflug atvinnustarfsemi skapar störf og verðmæti, styður við aðra atvinnustarfsemi og þjónustu og styrkir þannig samfélagið í heild. Áhrif starfseminnar einskorðast jafnframt ekki við sveitarfélagamörk Hvalfjarðarsveitar heldur ná til nærliggjandi sveitarfélaga og Vesturlands í heild. Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar telur mikilvægt að nýting auðlinda í hafi byggist á ábyrgri og sjálfbærri nýtingu veiðistofna, bestu fáanlegu vísindalegu upplýsingum og skýrum viðmiðum um vernd og viðgang þeirra.

Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar telur mikilvægt að þegar stjórnvöld taka ákvarðanir sem geta haft veruleg áhrif á einstakar atvinnugreinar og starfsgrundvöll þeirra liggi fyrir heildstætt mat á samfélagslegum, atvinnulegum, efnahagslegum og byggðalegum áhrifum þeirra. Þar þurfi meðal annars að horfa til áhrifa á störf og atvinnuöryggi, afkomu fjölskyldna, þjónustu- og verktakafyrirtæki, tekjur sveitarfélaga og byggðaþróun á viðkomandi svæði.

Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar leggur ríka áherslu á mikilvægi fyrirsjáanleika í starfsumhverfi fyrirtækja og atvinnugreina. Skýrar og fyrirsjáanlegar leikreglur eru forsenda þess að fyrirtæki geti tekið ákvarðanir um fjárfestingar, ráðningar og langtímauppbyggingu og skipta ekki síður máli fyrir starfsfólk og fjölskyldur þess. Sveitarstjórn leggur jafnframt áherslu á mikilvægi atvinnufrelsis og telur að stjórnvöld þurfi að sýna fram á skýr, málefnaleg og vel rökstudd sjónarmið þegar íþyngjandi takmarkanir eru lagðar á lögmæta atvinnustarfsemi, ekki síst þegar slíkar ákvarðanir geta haft veruleg áhrif á störf, fjárfestingar og atvinnulíf heilla samfélaga.

Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar telur því að ákvarðanir stjórnvalda sem kunna að leiða til þess að hvalveiðar og tengd starfsemi leggist af eða dragist verulega saman verði ekki teknar án þess að áður liggi fyrir vandað og gagnsætt mat á áhrifum slíkrar ákvörðunar á atvinnu, efnahag og byggðaþróun í Hvalfjarðarsveit og á Vesturlandi.
Sveitarstjórn hvetur jafnframt til þess að raunverulegt samráð verði haft við þau sveitarfélög, fyrirtæki, starfsfólk og samfélög sem slíkar ákvarðanir hafa bein áhrif á. Mikilvægt er að sjónarmið nærsamfélagsins og atvinnulegir hagsmunir þess séu hluti af þeirri heildstæðu mynd sem stjórnvöld byggja ákvarðanir sínar á.

Með vísan til framangreinds mótmælir sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar áformum um bann við hvalveiðum og hvetur stjórnvöld til þess að hverfa frá slíkum áformum og tryggja þess í stað að ákvarðanir um nýtingu hvalastofna byggist á vísindalegum grunni, sjálfbærni, fyrirsjáanleika og heildstæðu mati á atvinnulegum, efnahagslegum og byggðalegum áhrifum."

Ályktunin var samþykkt samhljóða í sveitarstjórn og hefur verið send til þingmanna kjördæmisins og verður kynnt þeim frekar nú í kjördæmaviku.