Fara í efni

Almyrkvi á sólu 12. ágúst - Götulýsing, umferðarstýring gleraugu ofl.

Þann 12. ágúst næstkomandi verður almyrkvi á sólu sjáanlegur á vestanverðu Íslandi. Almyrkvi er sjaldgæfur viðburður og á sér stað þegar tunglið gengur beint milli sólar og jarðar og skyggir alveg á sólina. Þetta er í fyrsta sinn sem almyrkvi sést á Íslandi frá árinu 1954 og verður hann ekki sjáanlegur aftur hér á landi fyrr en árið 2196. Fyrir og eftir almyrkva sést deildarmyrkvi, það er þegar tunglið skyggir á hluta sólar.

Vegna almyrkvans er búist við miklum fjölda ferðamanna til landsins, hversu margir það verða er erfitt að segja og líklegt að ytri þættir eins og veður spili inn í ákvörðun þeirra um hvert skuli halda um Vesturland. Búast má við aukinni umferð og mögulegum töfum.

Vegagerðin hefur auglýst mögulega umferðarstýringu á nokkrum vegum hér.

Slökkt verður á sjálfvirkri götulýsingu á meðan á almyrkva stendur í Melahverfi og Krosslandi. Slökkt verður til 13. ágúst.

 

Mikilvægt er að gæta öryggis augna en reglan er sú að í deildarmyrkva þá skal vera með sólmyrkvagleraugu, í almyrkva á að taka þau af. Frekar upplýsingar um öryggi augna má finna hér.

Allir íbúar Hvalfjarðarsveitar geta nálgast sólmyrkvagleraugu á skrifstofu Hvalfjarðarsveitar á opnunartíma.

Sævar Helgi Bragason heldur úti vefsíðunni Sólmyrkvi 2026. Á vefsíðunni má finna ítarlegar upplýsingar um almyrkvann, öryggi augna, sýnileika eftir landshlutum og annað sem gagnlegt er að vita fyrir viðburðinn.