Fara í efni

Álagning fasteignaskatts og gjalda

Álagning fasteignaskatts og gjalda árið 2024 er lokið.

Álagningarseðlar fasteigna er hægt að nálgast rafrænt á vefnum www.island.is

Þeir sem óska geta fengið álagningarseðil sendan í tölvupósti eða pósti og er þeim bent á að hafa samband við skrifstofu Hvalfjarðarsveitar í síma 433 8500 eða senda tölvupóst á netfangið ingunn@hvalfjardarsveit.is

Afsláttur á fasteignaskatti til örorku- og ellilífeyrisþega er tekjutengdur og ekki þarf að sækja um lækkun, gerður er vélrænn samanburður tekna samkvæmt skattframtali 2022. Þegar staðfest skattframtal 2023 liggur fyrir er afsláttur endurreiknaður og tilkynnt ef breyting verður.

Skrifstofustjóri Hvalfjarðarsveitar veitir upplýsingar og annast breytingar varðandi álagningu gjalda. Upplýsinga má leita í síma 433 8500 eða með tölvupósti á netfangið ingunn@hvalfjardarsveit.is

Gjalddagar fasteignagjalda umfram 25.000 kr. fyrir árið 2024 eru:
15. febrúar, 15. mars, 15. apríl, 15. maí, 15. júní, 15. júlí, 15. ágúst, 15. september og 15 október.
Gjalddagi fasteignagjalda undir 25.000 kr. er 15. maí.
Eindagi reiknast 30 dögum eftir gjalddaga.

Nánari upplýsingar má nálgast hér: Fasteignagjöld