Fara í efni

Álagning fasteignagjalda árið 2019

Álagningu fasteignagjalda í Hvalfjarðarsveit fyrir árið 2019 er lokið.  

Álagningarseðlar fasteigna eru einungis sendir út til 71 árs og eldri.  Aðrir geta nálgast álagningarseðil sinn rafrænt í íbúagátt á vef Hvalfjarðarsveitar eða á vefnum www.island.is

Þeir sem óska geta fengið álagningarseðil sendan í tölvupósti eða pósti og er þeim bent á að hafa samband við skrifstofu Hvalfjarðarsveitar í síma 433 8500 eða senda tölvupóst á netfangið ingunn@hvalfjardarsveit.is

Afsláttur á fasteignaskatti til örorku- og ellilífeyrisþega er tekjutengdur og ekki þarf að sækja um lækkun, gerður er vélrænn samanburður tekna samkvæmt skattframtali 2017.

Skrifstofustjóri Hvalfjarðarsveitar veitir upplýsingar og annast breytingar varðandi álagningu gjalda. Upplýsinga má leita í síma 433 8500 eða með tölvupósti á netfangið ingunn@hvalfjardarsveit.is 

Gjalddagar fasteignagjalda umfram 25.000 kr. fyrir árið 2019 eru:

15. febrúar, 15. mars, 15. apríl, 15. maí, 15. júní, 15. júlí, 15. ágúst og 15. september. 

Gjalddagi fasteignagjalda undir 25.000 kr. er 15. maí.

Eindagi reiknast 30 dögum eftir gjalddaga. 

Nánari upplýsingar má nálgast hér: Fasteignagjöld