Fara í efni

Álagning fasteignaskatts og gjalda 2023

Álagningu fasteignaskatts og gjalda í Hvalfjarðarsveit fyrir árið 2023 er lokið.

Álagningarseðla fasteigna er hægt að nálgast rafrænt á vefnum www.island.is

Þeir sem óska geta fengið álagningarseðil sendan í tölvupósti eða pósti og er þeim bent á að hafa samband við skrifstofu Hvalfjarðarsveitar í síma 433- 8500 eða senda tölvupóst á netfangið ingunn@hvalfjardarsveit.is

Afsláttur á fasteignaskatti til örorku- og ellilífeyrisþega er tekjutengdur og ekki þarf að sækja um lækkun, gerður er vélrænn samanburður tekna samkvæmt skattframtali 2021. Þegar staðfest skattframtal 2022 liggur fyrir er afsláttur endurreiknaður og tilkynnt ef breyting verður.

Skrifstofustjóri Hvalfjarðarsveitar veitir upplýsingar og annast breytingar varðandi álagningu gjalda. Upplýsinga má leita í síma
433- 8500 eða með tölvupósti á netfangið ingunn@hvalfjardarsveit.is

Gjalddagar fasteignagjalda umfram 25.000 kr. fyrir árið 2023 eru:
15. febrúar, 15. mars, 15. apríl, 15. maí, 15. júní, 15. júlí, 15. ágúst, 15. september og 15. október.
Gjalddagi fasteignagjalda undir 25.000 kr. er 15. maí.
Eindagi reiknast 30 dögum eftir gjalddaga.

Nánari upplýsingar má nálgast hér: