Fara í efni

Áhaldahús Hvalfjarðarsveitar fær nýtt útlit

Eftir áramótin var byrjað á endurbótum á ytra byrði áhaldahússins við Heiðarskóla og voru Guðmundur Sigurjónsson og Helgi Hjörleifsson fengnir til verksins. Búið er að skipta um glugga og hurðar. Á næstu dögum verður farið í að setja klæðninguna á húsið og verður spennandi að sjá áhaldahúsið í nýjum búning.