Fara í efni

Afrekssjóður Hvalfjarðarsveitar

Umsóknum fyrir Afrekssjóð þarf að skila inn fyrir 15. nóvember nk.

  • Afreksstyrkir eru ætlaðir til þess að styðja við bakið á afreksfólki sem á lögheimili í Hvalfjarðarsveit.
  • Umsækjandi þarf að hafa skarað fram úr og/eða hafa fengið viðurkenningu fyrir störf/afrek sín á sviði íþrótta.
  • Afrekssjóður veitir styrki vegna þátttöku í fjölþjóðlegum mótum, sýningum erlendis og ferðastyrk vegna íþrótta.

Eftirfarandi gögn þurfa að fylgja umsókn:

  • Kynning á umsækjanda.
  • Yfirlit og staðfesting á afrekum/viðurkenningum.
  • Staðfesting á þátttöku.
  • Kvittanir vegna útlagðs kostnaðar.

Reglur sjóðsins er að finna á heimasíðu Hvalfjarðarsveitar. Umsóknir skulu berast Fjölskyldu- og frístundanefnd Hvalfjarðarsveitar. Umsóknareyðublað má nálgast á heimasíðu Hvalfjarðarsveitar. Einnig er hægt að senda á netfangið fristund@hvalfjardarsveit.is