Fara í efni

Afrekssjóður Hvalfjarðarsveitar

Skila þarf inn umsóknum fyrir Afrekssjóð fyrir 15. apríl nk. 

  •  Afreksstyrkir eru ætlaðir til þess að styðja við bakið á afreksfólki sem á lögheimili í Hvalfjarðarsveit. 
  •  Umsækjandi þarf að hafa skarað fram úr og/eða hafa fengið viðurkenningu fyrir störf/afrek sín á sviði íþrótta.
  •  Afrekssjóður veitir styrki vegna þátttöku í fjölþjóðlegum mótum, sýningum erlendis og ferðastyrk vegna íþrótta.

Eftirfarandi gögn þurfa að fylgja umsókn:

  •  Kynning á umsækjanda.
  •  Yfirlit og staðfesting á afrekum/viðurkenningum.
  •  Staðfesting á þátttöku.
  •  Kvittanir vegna útlagðs kostnaðar.

Reglur sjóðsins er að finna á heimasíðu Hvalfjarðarsveitar.  Umsóknir skulu berast Fjölskyldu- og frístundanefnd Hvalfjarðarsveitar. Umsóknareyðublað má nálgast á heimasíðu Hvalfjarðarsveitar. Einnig er hægt að senda á netfangið fristund@hvalfjardarsveit.is