Afmælishátíð Hvalfjarðarsveitar
04. júní 2026
Mánudaginn 1.júní síðastliðinn fór fram 20 ára afmælishátíð Hvalfjarðarsveitar í stjórnsýsluhúsinu í Melahverfi, Innramel 3.
Dagurinn var einstaklega vel heppnaður en boðið var upp á hlaðborð af veitingum frá Kvenfélaginu Lilju og Heiðmar Eyjólfsson söng fyrir gesti.
Hvalfjarðarsveit þakkar öllum þeim sem mættu á viðburðinn kærlega fyrir komuna og vill sömuleiðis koma á framfæri þakklæti fyrir góðar gjafir og kveðjur í tilefni dagsins.
Menningar- og markaðsnefnd og Kvenfélagið Lilja héldu utan um viðburðinn og er þeim færðar bestu þakkir fyrir.
Einnig eru Antoni Teit Ottesen og Oddi Ottesen færðar þakkir fyrir glæsilegt afmælismyndband.
Myndir frá viðburðinum má finna hér í myndasafni.