Fara í efni

Aðalskipulag Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 - Skilmálabreytingar

Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar hefur samþykkt eftirfarandi skipulagstillögur, skv. 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010:

Tillögu að breytingu á skilmálum Aðalskipulags Hvalfjarðarsveitar 2020 – 2032 fyrir Frístundabyggð – Markmið breytingar er að skerpa á skilmálum er varða atvinnurekstur innan frístundabyggða. Skýra heimildir um atvinnurekstur og tryggja að starfsemin fari fram á skilgreindum landnotkunarreitum. Málsnr. 1652/2025 í Skipulagsgátt, hér

Tillögu að breytingu á skilmálum Aðalskipulags Hvalfjarðarsveitar 2020 – 2032 fyrir Landbúnaðarland L3 – Markmið breytingar er að skýra nýtingu innan L3 svæða með því að stofna fleiri flokka með nákvæmari skilgreiningum um uppbyggingarheimildir, sem taka mið af aðstæðum á hverjum stað fyrir sig. Málsnr. 1651/2025 í Skipulagsgátt, hér

Tillögu að breytingu á skilmálum Aðalskipulags Hvalfjarðarsveitar 2020 – 2032 fyrir Skógræktar- og landbúnaðarsvæði – Markmið breytingar er að skýra ákvæði um ný skógræktar- og landgræðslusvæði og að horft sé til staðhátta á hverjum stað fyrir sig til þess að skógrækt hafi ekki neikvæð áhrif á aðliggjandi landnotkun og önnur náttúru- og menningargæði. Málsnr. 1650/2025 í Skipulagsgátt, hér

Kynningartími tillagnanna er frá 22. maí – 3. júlí 2026.

Hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemd við tillögurnar á kynningartíma. Athugasemdum skal skilað inn rafrænt í Skipulagsgátt. Ef óskað er nánari kynningar á tillögunum skal bóka tíma hjá skipulagsfulltrúa.

Umhverfis- og skipulagsdeild