Fara í efni

Aðalskipulag Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 – Kynningarfundur

Kynningarfundur vegna aðalskipulags Hvalfjarðarsveitar 2020-2032, verður haldinn á skrifstofu Hvalfjarðarsveitar, Innrimel 3, fimmtudaginn 16. júní næstkomandi kl. 10-12.

Á fundinum mun Skipulagsfulltrúi Hvalfjarðarsveitar auk starfsmanns frá Eflu Verkfræðistofu sem er ráðgjafi sveitarfélagsins við gerð aðalskipulagsins, kynna og svara fyrirspurnum um aðalskipulagið sem nú er í auglýsingu en frestur til að skila inn athugasemdum er til 22. júní næstkomandi.