Fara í efni

Ráðstafanir vegna kórónaveiru (2019-nCoV)

Á heimasíðu Embættis landlæknis hafa verið settar inn leiðbeiningar til almennings vegna Kórónaveirunnar.

Faraldur kórónaveiru (2019-nCoV) breiðist hratt út en enn sem komið er hafa langflest tilfellin greinst í Kína. Staðfest er að veiran smitast milli manna og að hún getur valdið alvarlegum veikindum. Í ljósi þessa hefur embætti ríkislögreglustjóra lýst yfir óvissustigi almannavarna í samráði við sóttvarnalækni og embætti landlæknis vegna kórónaveiru (2019-nCoV).

Hér má sjá vef Embættis landlæknis.