Fara í efni

20 ára afmæli Hvalfjarðarsveitar

Í ár fagnar Hvalfjarðarsveit 20 ára afmæli, en sveitarfélagið varð til 1. júní 2006 við sameiningu fjögurra sveitahreppa sunnan Skarðsheiðar. Í tilefni þess verður opið hús í stjórnsýsluhúsinu í Melahverfi þann 1. júní nk. kl. 16:30.
Íbúar, starfsfólk og aðrir velunnarar eru velkomnir og boðið verður uppá veitingar, tónlistaratriði og fleira.

 Áttu skemmtilega mynd úr sveitarfélaginu?
Ef svo er má endilega senda mynd/myndir á 
fristund@hvalfjardarsveit.is.
Myndirnar mega tengjast samfélaginu, fólkinu, mannlífinu eða minningum úr sveitarfélaginu í gegnum tíðina.