Fara í efni

112 dagurinn 2026

Á morgun er 112 dagurinn sem haldinn er 11. febrúar ár hvert til að minna okkur á neyðarnúmer allra landsmanna, 112 – eina númerið sem landsmenn þurfa að þekkja í neyð.

Í ár er þess sérstaklega minnst að 30 ár eru síðan samræmt neyðarsímanúmer var tekið upp á Íslandi. Fyrsta símtalinu í 1-1-2 var svarað þann 1. janúar 1996.

Viðbragðsaðilar bjóða íbúum Hvalfjarðarsveitar og Akraneskaupstaðar að koma í heimsókn á slökkvistöðina, Kalmansvöllum 2, í tilefni af 112 deginum á miðvikudag frá kl. 16-18.
Til sýnis verður búnaðurinn og tækin sem viðbragðsaðilar nota við störf sín.
Hlökkum til að sjá sem flesta.