Fara í efni

Velferðar- og fræðslunefnd

13. fundur 18. ágúst 2026 kl. 15:59 - 19:45 í stjórnsýsluhúsinu Innrimel 3
Nefndarmenn
  • Guðrún Sigríður Gísladóttir formaður
  • Valborg Ragnarsdóttir aðalmaður
  • Arney Þyrí Guðjónsdóttir aðalmaður
  • Sigurður Pétur Svanbergsson aðalmaður
  • Ásta Jóna Ásmundsdóttir 1. varamaður
Starfsmenn
  • Freyja Þöll Smáradóttir embættismaður
  • Eyrún Jóna Reynisdóttir embættismaður
  • Svala Ýr Smáradóttir embættismaður
  • Anna Margrét Tómasdóttir embættismaður
  • Andrea Ýr Arnarsdóttir embættismaður
Fundargerð ritaði: Freyja Þöll Smáradóttir Deildarstjóri Velferðar- og fræðsludeildar
Dagskrá
Formaður bauð fundarmenn velkomna og setti fund skv. fyrirliggjandi dagskrá auk þess að óska eftir, með vísan til c.liðar 16. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Hvalfjarðarsveitar, að bæta með afbrigðum eftirfarandi máli á dagskrá:

Mál nr. 2602014 - Reglur um Íþrótta- og æskulýðssjóð Hvalfjarðarsveitar. Málið verður nr. 4 á dagskránni verði það samþykkt.

Samþykkt 5:0

Leik- og grunnskólastjórar sátu undir lið nr. 4 og 6.

Forstöðumaður íþrótta- og tómstundamála sat undir lið nr. 1 og 3.

Arney Þyrí vék af fundi 19:20.

1.Samfélagsmiðstöð í Heiðarborg

2509011

Verkstaða íþróttahússins við Heiðarborg.



Minnisblað: gjaldskrá, útleigureglur og öryggis- og umgengnisreglur.



Minnisblað: Þjálfun í þreksal.
Fundarmenn fóru í skoðunarferð á verkstað ásamt nefndarmönnum mannvirkja- og framkvæmdanefndar og verkefnastjóra framkvæmda og eigna. Farið var yfir verkstöðu framkvæmda.

Opnunarhátíð Heiðarborgar, íþrótta- og samfélagsmiðstöðvar Hvalfjarðarsveitar, fer fram þann 3. október nk.

Velferðar- og fræðslunefnd samþykkir að boðið verði upp á þjálfun í þreksal þar sem veitt verður kennsla og leiðsögn í notkun Biostrength-tækjanna.

Velferðar- og fræðslunefnd samþykkir að fela velferðar- og fræðsludeild að uppfæra gjaldskrá Heiðarborgar, ásamt drögum að útleigureglum og öryggis- og umgengnisreglum, í samræmi við umræður á fundinum. Uppfærð gögn verði í framhaldinu lögð fyrir sveitarstjórn til samþykktar.


2.Afrekssjóður 2026.

2602038

Þrjár umsóknir bárust í afrekssjóð Hvalfjarðarsveitar. Nöfn umsækjanda eru birt hér í stafrófsröð :

Arna Rún Guðjónsdóttir,Guðbjörg Bjartey Guðmundsdóttir og Mattías Bjarmi Ómarsson. Umsóknirnar uppfylla skilyrði sjóðsins.



Arna Rún er 18 ára og býr á Bjarteyjarsandi hún hefur æft fimleika með Fimleikafélagi ÍA frá því hún var 6 ára og sinnt æfingum af alúð og metnaði. Hún hefur keppt með öllum aldursflokkum í hópfimleikum. á síðasta ári var hún í hópi sameinaðs liðs Aftureldingar og Ía sem vann sér inn keppnisrétt á Norðurlandamót fullorðinna í Espoo, Finnlandi 2025. Var þetta í fyrsta sinn sem keppendur úr FIMA átti keppendur á alþjóðlegu móti.



Guðbjörg er 21 árs og stundar nám í Towson University í Maryland í Bandaríkjunum og æfir sund með sundliðinu þar. Sundliðið keppir í 1. deild og setti sundliðssveitin hennar skólamet í skriðsunds-boðsundi og er Guðbjörg 4. stigahæsta sundkonan í sínu liði. Guðbjörg náði lágmarki inn á stórt sundmót í Flórída ásamt því hefur Guðbjörg unnið til silfurverðlauna með sundliðinu sínu.



Mattías Bjarmi er á 18. ári og er búsettur í Hvalfjarðarsveit, hann byrjaði snemma að æfa fimleika og hefur alla tíð æft með ÍA, hann hefur einnig æft með afrekshóp sem er samsett lið með Aftureldingu í Mosfellsbæ. Mattías hefur verið valinn í landsliðshóp og keppir fyrir Íslands hönd með drengjaliði Fimleikasambands Íslands á Evrópumeistaramótinu í Baku í Azerbaijan og lentu þeir í 4. sæti á mótinu. Mattías tilnefndur af FImleikafélagi ÍA sem íþróttamanneskja ársins 2024 og lenti hann í 3. sæti þann 6. janúar 2025. Mattías keppti með sameinðu liði ÍA og Aftureldingar á NM í hópfimleikum í Espoo, Finnlandi 2025.
Velferðar- og fræðslunefnd ákvað að veita Örnu Rún afreksstyrk að upphæð 65.000.- , Guðbjörgu Bjarteyju afreksstyrk að upphæð 65.000.- og Mattíasi Bjarma afreksstyrk að upphæð 65.000.- og óskar þeim velfarnaðar í framtíðinni.

3.Leigusamningur-Félagsheimilið Hlaðir og tjaldsvæði að Hlöðum- Drög

1810047

Á fundi Menningar- og markaðsnefndar 4. ágúst 2026 var málefni Félagsheimilisins Hlaða tekið til umræðu. Nefndin lagði til að haldinn yrði sameiginlegur fundur með Velferðar- og fræðslunefnd, sem fer með málefni sundlaugarinnar að Hlöðum.
Velferðar- og fræðslunefnd telur tillögu um sameiginlegan fund mikilvægan til að ræða um málefni Hlaða. Velferðar- og fræðsludeild er falið að skipuleggja sameiginlegan fund.

4.Reglur um Íþrótta- og æskulýðssjóð Hvalfjarðarsveitar

2602014

Reglur um íþrótta- og æskulýðssjóð Hvalfjarðarsveitar voru samþykktar í sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar 11.02.2026.



Á fundi Menningar- og markaðsnefndar 4. ágúst 2026 fóru fram umræður um endurskoðun gildandi reglna um Menningarsjóð Hvalfjarðasveitar. Endurskoðunin miðar að því að skýra reglurnar og breyta tímasetningum, en meginmarkmið sjóðsins verður óbreytt. Hingað til hafa tímasetningar Menningarsjóðs Hvalfjarðasveitar haldist í hendur við tímasetningar Íþrótta- og æskulýðssjóðs Hvalfjarðasveitar.



Umræður fóru fram um endurskoðun á gildandi reglum. Tilgangur endurskoðunarinnar er að skýra reglurnar og samræma tímasetningar við Menningarsjóðs. Meginmarkmið sjóðsins haldast óbreytt. Velferðar- og fræðsludeild falið að vinna málið áfram og leggja fram uppfærðar reglur á næsta fundi nefndarinnar.

5.Trúnaðarmál Velferðar- og fræðslunefndar

2504003

Trúnaðarmál í Velferðar- og fræðsludnefndar.
Tekin voru fyrir trúnaðarmál í Velferðar- og fræðslunefnd.

6.Starfsáætlun Skýjaborgar 2026-2027

2608007

Starfsáætlun Skýjaborgar 2026-2027
Lagt fram til kynningar.

7.Barnamenningarhátíð

2405029

Barnó er sameiginleg barnamenningarhátíð Vesturlands þar sem börn og ungmenni fá að njóta, skapa og taka þátt í fjölbreyttu menningarlífi um allt Vesturland. Hátíðin fer fram í október 2026.
Listi yfir möguleg verkefni/viðburði í Hvalfjarðarsveit á Barnamenningarhátíð lagður fram til kynningar. Verkefnastjóra velferðar- og fræðsludeildar falið að vinna málið áfram og senda síðan atriði og verkefni til stýrihóps Barnó, SSV.

8.Siðareglur kjörinna fulltrúa í sveitarstjórn, nefndum og ráðum á vegum Hvalfjarðarsveitar.

2606020

Kjörnir fulltrúar undirgangast þessar siðareglur með undirskrift sinni og lýsa því þar með yfir að þeir ætli að hafa þær að leiðarljósi.
Siðareglur voru lagðar fram og staðfestu nefndarmenn með undirskrift sinni að þeir hefðu kynnt sér þær og hygðust hafa þær að leiðarljósi í störfum sínum.

Fundi slitið - kl. 19:45.

Efni síðunnar