Ungmennaráð Hvalfjarðarsveitar
Dagskrá
1.Ábendingar til ungmennaráðs
2605011
Farið var yfir ábendingar úr ábendingarkassanum á síðasta fundi ungmennaráðs, sem haldinn var 12. maí 2026. Ábendingunum hefur verið komið áfram til viðeigandi aðila.
Bréf til sveitarstjórnar frá ungmennráðinu.
Bréf til sveitarstjórnar frá ungmennráðinu.
Undir þessum lið kom sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar inn á fundinn. Léttar umræður fóru fram og var sveitarstjórn afhent bréf frá ungmennaráði þar sem óskað var eftir fundi með sveitarstjórn í tengslum við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2027.
2.Fjárhagsáætlun Ungmennaráðs 2027
2609002
Helstu áherslur og ábendingar Ungmennaráðs Hvalfjarðarsveitar í tengslum við gerð fjárhagsáætlunar.
Umræður fóru fram um helstu áherslur ungmennaráðs fyrir fjárhagsáætlunargerð 2027 sem ráðið hyggst kynna fyrir sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar.
3.Samfélagsmiðlar.
2609003
Umræður hafa farið fram um að Ungmennaráð Hvalfjarðarsveitar hafi umsjón með samfélagsmiðlum sem tengjast starfsemi ráðsins.
Ungmennaráð mun stofna samfélagasmiðlaaðgang og hvetur íbúa og aðra áhugasama til að fylgja starfsemi ráðsins þar.
4.Samfélagsmiðstöð í Heiðarborg
2509011
Þjálfun í þreksal og opnunarhátíð 3. október.
Verkefnastjóri Velferðar- og fræðsludeildar fór yfir helstu atriði varðandi Heiðarborg, þar á meðal stöðu framkvæmda, þjálfun í þreksal og fyrirhugaða opnunarhátíð.
Ungmennaráð Hvalfjarðarsveitar fagnar því að senn líði að opnun Heiðarborgar og hlakkar til að nýta þá aðstöðu sem þar verður í boði.
Ungmennaráð Hvalfjarðarsveitar fagnar því að senn líði að opnun Heiðarborgar og hlakkar til að nýta þá aðstöðu sem þar verður í boði.
5.Barnamenningarhátíð
2405029
Barnó er sameiginleg barnamenningarhátíð Vesturlands þar sem börn og ungmenni fá að njóta, skapa og taka þátt í fjölbreyttu menningarlífi um allt Vesturland. Hátíðin fer fram í október 2026.
Ungmennaráð hlakkar til að taka þátt í Barnó og mun í tengslum við það meðal annars standa fyrir opnu húsi fyrir ungmenni í Hvalfjarðarsveit. Markmiðið er að skapa vettvang þar sem ungt fólk getur komið saman, rætt málefni sem á því brenna og komið sjónarmiðum sínum og hugmyndum á framfæri.
6.Barnvæn sveitarfélög-Innleiðing Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.
2002048
Þann 1. júní 2026 var hátíðleg stund í Hvalfjarðarsveit þegar ungmennaráð tók við viðurkenningu frá UNICEF um að sveitarfélagið væri Barnvænt sveitarfélag.
Viðurkenningarathöfnin fór fram í stjórnsýsluhúsinu í Melahverfi á sama degi og Hvalfjarðarsveit fagnaði 20 ára afmæli sínu.
Í tilefni dagsins fengu öll börn í leik- og grunnskólum sveitarfélagsins afhentar peysur merktar Hvalfjarðarsveit. Einnig var boðið upp á veitingar og söngatriði til að fagna þessum merka áfanga.
Hvalfjarðarsveit ritaði undir samkomulag við UNICEF og Mennta- og barnamálaráðuneytið í ágúst 2023 um að verða Barnvænt sveitarfélag og hefur þeim áfanga nú verið náð, eins og áður kom fram. Barnvæn sveitarfélög er verkefni sem styður sveitarfélög við að innleiða Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna í alla sína stjórnsýslu og starfsemi. Verkefnið byggir á alþjóðlegu verkefni UNICEF sem kallast Child Friendly Cities Initiative og hefur verið innleitt í hundruðum borga frá því árið 1996. Verkefnið hefur verið innleitt hér á landi undir nafninu Barnvæn sveitarfélög frá því árið 2016.
Verkefnið Barnvæn sveitarfélög er innleitt í átta skrefum sem hvert um sig styður við réttindi barna innan sveitarfélagsins.
Viðurkenning Barnvæns sveitarfélags gildir í þrjú ár frá því að hún er veitt. Því þarf sveitarfélagið að setja sér ný markmið og hefja nýtt stöðumat fljótlega eftir að viðurkenning er í höfn, ætli það sér að hljóta endurmat að þremur árum liðnum. Þá þarf sveitarfélagið að fara í gegnum innleiðingarferlið að nýju og ef vel gengur hlýtur það nýja viðurkenningu.

Ungmennaráð fagnar því að Hvalfjarðarsveit hafi hlotið viðurkenningu sem barnvænt sveitarfélag. Ráðið leggur áherslu á að ungmennaþing verði haldið að nýju sem allra fyrst. Verður það eitt þeirra áherslumála sem ungmennaráð hyggst koma á framfæri við sveitarstjórn.
7.Ungmennaráðstefnan, Ungt fólk og lýðheilsa.
2608022
Ungmennaráð Ungmennafélag Íslands stendur fyrir ungmennaráðstefnunni Ungt fólk og lýðheilsa dagana 18.til 20. september 2026 í Skólabúðum UMFÍ á Reykjum í Hrútafirði.
Lagt fram til kynningar.
8.Áhrifadagar ungmenna á Akureyri
2609001
Áhrifadagar ungmenna er tveggja daga ráðstefnasem er haldin í tilefni 10 ára afmælis verkefnisins Barnvæn sveitarfélög. Ráðstefnan fer fram í Hofi á Akureyri 28.-29. október 2026.
Lagt fram til kynningar.
9.Siðareglur kjörinna fulltrúa í sveitarstjórn, nefndum og ráðum á vegum Hvalfjarðarsveitar.
2606020
Kjörnir fulltrúar undirgangast þessar siðareglur með undirskrift sinni og lýsa því þar með yfir að þeir ætli að hafa þær að leiðarljósi.
Siðareglur voru lagðar fram.
Fundi slitið - kl. 15:40.