Ungmennaráð Hvalfjarðarsveitar
Dagskrá
Díana Ingileif Ottesen boðaði forföll.
1.Leikskólahúsnæði - Skýjaborg
2202016
Hönnunargögn fyrir nýjum leikskóla eru kynnt.
Kynning fór fram á hönnunargögnum fyrir nýjum leikskóla.
2.Barnvæn sveitarfélög-Innleiðing Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.
2002048
Sveitarfélagið vinnur að innleiðingu á Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna með það að markmiði að verða Barnvænt sveitarfélag. Aðgerðaáætlun hefur verið samþykkt af sveitarstjórn og kynnt af ungmennaráði fyrir öllum nemendum í Heiðarskóli. Unnið hefur verið að þeim aðgerðum sem þar koma fram og stefnir í að sveitarfélagið fái viðurkenningu sem barnvænt sveitarfélag, á 20 ára afmælisdegi sveitarfélagsins, þann 1 júní 2026.
Lagt fram til kynningar.
3.Afmælisár Hvalfjarðarsveitar - 20 ára þann 1. júní 2026.
2602019
Í ár fagnar Hvalfjarðarsveit 20 ára afmæli. Sveitarfélagið varð til 1. júní 2006 með sameiningu fjögurra hreppa. Að því tilefni verður opið hús í stjórnsýsluhúsinu í Melahverfi þann 1. júní nk. kl. 16:30, þar sem íbúar, starfsfólk og aðrir velunnarar fagna saman þessum 20 árum. Boðið verður upp á veitingar, tónlistaratriði og fleira.
Einnig mun sveitarfélagið, í tilefni af afmælinu, færa nemendum leik- og grunnskóla merktar peysur að gjöf. Peysurnar verða afhentar á afmælisdaginn sjálfan. Nemendum verður jafnframt boðið á sérstaka afmælishátíð fyrir nemendur og starfsfólk sveitarfélagsins í stjórnsýsluhúsinu í Melahverfi fyrr um daginn, 1.júní.
Hvalfjarðardagar 2026 verða með afmælisþema í ár.

4.Ábendingar til ungmennaráðs
2605011
Farið yfir ábendingar úr ábendingarkassa sem staðsettur er í Heiðarskóla.
Farið var yfir ábendingar úr ábendingarkassa. Formanni í samstarfi við verkefnastjóra falið að koma ábendingum á rétta staði. Ungmennaráð óskar eftir því að fá fund með nýrri sveitarstjórn í haust þar sem farið verður yfir ábendingar sem og áherslur ungmennaráðs.
Þar sem þetta er síðasti fundur ungmennaráðs á þessu kjörtímabili vil ég, fyrir hönd Velferðar- og fræðsludeildar, þakka ykkur innilega fyrir gott samstarf og farsæla samvinnu á liðnu tímabili (AGA).
Ungmennráð vill þakka kærlega fyrir samstarfið, tækifærin og traustið á kjörtímabilinu.
Ungmennráð vill þakka kærlega fyrir samstarfið, tækifærin og traustið á kjörtímabilinu.
Fundi slitið - kl. 15:35.