Fara í efni

Ungmennaráð Hvalfjarðarsveitar

18. fundur 17. febrúar 2026 kl. 15:00 - 17:00 í stjórnsýsluhúsinu Innrimel 3
Nefndarmenn
  • Díana Ingileif Ottesen aðalmaður
  • Veronika Jara Heimisdóttir aðalmaður
  • Anton Teitur Ottesen aðalmaður
  • Valgarður Orri Eiríksson aðalmaður
  • Hrafn Sölvi Vignisson aðalmaður
Starfsmenn
  • Svala Ýr Smáradóttir embættismaður
  • Anna Guðrún Alexandersdóttir embættismaður
Fundargerð ritaði: Anna Guðrún Alexandersdóttir Verkefnastjóri Velferðar- og fræðsludeildar
Dagskrá

1.Kosning formanns, varaformanns og ritara.

2206003

Kosning formanns, varaformanns og ritara.
a) Formaður
Lögð fram tillaga um Anton Teit Ottesen sem formann Ungmennaráðs.
Samþykkt samhljóða.
b) Varaformaður
Lögð fram tillaga um Veroniku Jöru Heimisdóttur sem varaformann Ungmennaráðs.
Samþykkt samhljóða.
c)Ritari
Lögð fram tillaga um Valgarð Orra Eiríksson sem ritara Ungmennaráðs.
Samþykkt samhljóða.

2.Starfsreglur Ungmennaráðs Hvalfjarðarsveitar

2102009

Starfsreglur Ungmennaráðs Hvalfjarðarsveitar.
Farið yfir starfsreglur Ungmennaráðs Hvalfjarðarsveitar og hvað felst í starfi Ungmennaráðs. Stjórnsýsluleg vinnubrögð kynnt nefndarmönnum.

3.Hugmyndir og ábendingar Ungmennaráðs Hvalfjarðarsveitar

2301008

Hugmyndir og ábendingar Ungmennaráðs
Ungmennaráð kom með ábendingar sem verkefnastjórar á Velferðar- og fræðsludeild vinna áfram.

4.Samfélagsmiðstöð í Heiðarborg

2509011

Kynning á samfélagsmiðstöðinni Heiðarborg
Ný samfélagsmiðstöð í Heiðarborg kynnt og rætt um notagildi húsnæðisins.

5.Raddir ungs fólks - samtal við ráðamenn

2602046

Kynning á Landsverkefninu Raddir ungs fólks - samtal við ráðamenn.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 17:00.

Efni síðunnar