Fara í efni

Umhverfis- skipulags- og náttúruverndarnefnd 2013-2022

55. fundur 05. júní 2015 kl. 16:00 - 17:00 í stjórnsýsluhúsinu Innrimel 3
Nefndarmenn
  • Arnheiður Hjörleifsdóttir aðalmaður
  • Daníel Ottesen aðalmaður
  • Guðjón Jónasson aðalmaður
  • Ása Hólmarsdóttir aðalmaður
  • Ólafur Ingi Jóhannesson aðalmaður
Fundargerð ritaði: Ása Hólmarsdóttir
Dagskrá

1.Stefnumótun USN nefndar

1503014

Á USN nefndarfundi 20. maí 2015 var ákveðið að halda vinnufund í júni vegna stefnumótunarvinnunar.
USN nefnd hefur lokið við drög að stefnumótun.
Formanni falið að senda drögin til skipulags- og umhverfisfulltrúa og byggingarfulltrúa til yfirlestrar og óskað er eftir ábendingum og upplýsingum frá þeim.

2.Endurskoðun aðalskipulags.

1409020

Sveitarstjórn óskaði haustið 2014 eftir umsögn USN nefndar á því hvort að ástæða væri til að endurskoða Aðalskipulag Hvalfjarðarsveitar 2008-2020 sbr. 35.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m.s.br.
USN nefnd telur ekki ástæðu til að fara í heildarendurskoðun á Aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2008 -2020.

3.Másstaðir 3 - 5 "sæluhús" (gestahús)

1505027

Sótt er um byggingarleyfi fyrir fimm "sæluhús" á lóðinni Másstaðir 3. Hvert hús er 24 fm.
Formaður fór yfir aðdraganda málsins.

USN nefnd leggur til við sveitarstjórn að skipulagsfulltrúi framkvæmi grenndarkynningu fyrir landeigendum á Ægissíðu, Gerði og Másstöðum landnr. 133706 skv. 3. mgr. 44 gr. skipulagslaga 123/2010.

4.Vallanes 3 - Geymsla - Flutningur geymsluskúrs á lóð

1506002

Sótt er um byggingarleyfi vegna flutnings á geymsluskúr á landið Vallanes 3, lnr. 133661. Geymsluskúrinn er 21 fm og verður ekki tengdur rafmagni eða vatni, verður nýttur sem köld geymsla.
USN leggur til við sveitarstjórn að gefið verði út byggingarleyfi.

5.Þyrill - Olíutankar N1 - Niðurrif

1506001

Sótt er um leyfi til að grafa upp og fjarlægja geyma sem voru notaðir fyrir eldsneyti hjá ESSO/N1 við Þyril í Hvalfjarðarsveit. Um er að ræða 4 geyma sem eru skráðir inná landnúmerið 133503 með mhl.nr.45.
USN leggur til við sveitarstjórn að veita heimild til að fjarlægja geyma við fyrrum söluskálann Þyril.
Jafnframt bendir USN nefnd á að framkvæmdaraðili þarf að sækja um tímabundið starfsleyfi vegna niðurrifs geyma til Heilbrigðisnefndar Vesturlands.

Fundi slitið - kl. 17:00.

Efni síðunnar