Fara í efni

Umhverfis- skipulags- og náttúruverndarnefnd 2013-2022

53. fundur 22. apríl 2015 kl. 15:15 - 19:00 í stjórnsýsluhúsinu Innrimel 3
Nefndarmenn
  • Arnheiður Hjörleifsdóttir aðalmaður
  • Daníel Ottesen aðalmaður
  • Guðjón Jónasson aðalmaður
  • Ása Hólmarsdóttir aðalmaður
  • Ólafur Ingi Jóhannesson aðalmaður
  • Ólafur Melsted embættismaður
Fundargerð ritaði: Ása Hólmarsdóttir
Dagskrá

1.Erindisbréf nefndar

1111013

Skipulags- og umhverfisfulltrúa var á síðasta USN nefndarfundi falið að vinna málið áfram og gera breytingar í samræmi við umræður á fundinum.
Drög að uppfærðu erindisbréfi rædd. Skipulags- og umhverfisfulltrúa falið að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum.

2.Grundartangi - Hávaðamengun

1503026

Borist hefur erindi frá Einari Tönsberg, sumarhúsaeiganda í Kjós, varðandi hávaðamengun frá Grundatangasvæðinu.
Skipulagsfulltrúi kynnti erindið og lagði fram drög að svarbréfi.
Nefndin fjallaði um hljóðmengunarmál á Grundartanga á fundi sínum þann 11. desember s.l. og þá var samþykkt að fara í kortlagningu á hávaða frá iðnaðarsvæðinu.

3.Leyfi til efnistöku í landi Kjalardals.

1412009

Borist hefur erindi frá Bjarka B. Magnússyni varðandi efnistöku í landi Kjalardals. Sótt er um framkvæmdaleyfi fyrir efnistöku á allt að 30.000 rm. á rúmlega 4000 fm. svæði við núverandi námu, til 12 mánaða.
USN nefnd leggur til við sveitarstjórn að veitt verði framkvæmdaleyfi fyrir efnistökunni. Ekki þarf að grenndarkynna framkvæmdarleyfið þar sem framkvæmdin er í samræmi við aðalskipulag sbr. 13. gr. skipulagslaga 123/2010. Skipulagsfulltrúa falið að vinna málið áfram.

4.Stefnumótun USN nefndar

1503014

Sveitarstjórn hefur hafið vinnu við stefnumótun í málefnum sveitarfélagsins.
USN nefnd hefur unnið að stefnumótun fyrir þá málaflokka sem undir nefndina heyra: (ásýnd sveita, náttúruvernd, úrgangsmál, hljóðvist, fráveita, skipulagsmál, samgöngumál, skógrækt, umhverfismál, og loftgæði).
Formanni falið að uppfæra drögin í samræmi við umræður á fundinum og senda á nefndarmenn.

5.Miðsandur Kampur - Hvalstöð - Mhl.16

1504005

Sótt er um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu á tómstundarhúsi mhl. 16 á Miðsandi Kampi,LNR. 133503. Bygging er 100.22 fm. og verður eftir stækkun 168,1 fm. Stækkun er því 65,9 fm. og verður húsinu breytt í framhaldi í starfsmannahús.
USN leggur til við sveitarstjórn að gefið verði út byggingarleyfi, sbr. 3 mgr. 44 gr. skipulagslaga 123/2010

6.Bjarkarás 7 - Breyta skráningu úr sumarhúsi í íbúðarhús

1407016

Sótt er um að breyta 63.7 fm. sumarhúsi í íbúðarhús. Samkvæmt gildandi byggingarreglugerð getur húsið talist íbúðarhús þegar byggð hefur verið geymsla. Málið var áður til umfjöllunar í USN nefnd 14. júli 2014 þar sem gerð var eftirfarandi bókun. "USN nefnd leggur til að fresta málinu þar til deiliskipulag Bjarkaráss hefur öðlast gildi. Deiliskipulag Bjarkaráss tók gildi 24. mars 2015."
USN nefnd leggur til við sveitarstjórn að heimila breytingu á skráningu Bjarkaráss 7 úr sumarhúsi í íbúðarhús þegar byggð hefur verið geymsla, enda er það í fullu samræmi við gildandi byggingarreglugerð.

Ólafur Jóhannesson vék af fundi undir afgreiðslu á þessum lið.

7.Breyting deiliskipulags lóða á stóriðnaðarsvæði við Grundartanga, Norðurál

1409023

Erindi hefur borist frá Norðurál hf. dags. 5. mars 2015 um skipulagsmál vegna aukningar framleiðslu Norðuráls á Grundartanga. Málið var tekið fyrir á 52.fundi USN nefndar 11. mars 2015 og gerð eftirfarandi bókun: "Málinu frestað og umhverfis- og skipulagsfulltrúa falið að afla frekari gagna"
USN nefnd telur fyrirhugaða framleiðsluaukningu Norðuráls á Grundartanga kalla á breytingu á gildandi deiliskipulagi sbr. 1 mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagsfulltrúa falið að fylgja málinu eftir.

8.Hugmynd um svæði fyrir frístundabúskap í nálægð við Melahverfi.

1504013

Borist hefur erindi frá Sigurði Arnari Sigurðssyni varðandi hugmyndir um byggð fyrir frístundabúskap norðan við Melahverfi. Erindinu var vísað til USN nefndar frá sveitarstjórn.
USN nefnd þakkar bréfritara innsent erindi og tekur jákvætt í hugmyndir hans um svæði fyrir frístundabúskap í nálægð við Melahverfi. Nefndin telur að skoða þurfi hugmyndirnar nánar m.a. með m.t.t. staðsetningar og almennra skipulags- og byggingarskilmála. Skipulagfulltrúa falið að skoða þessi atriði nánar.

9.Mýrarholtsvegur 2

1503018

Á 52. fundi USN nefndar var gerð eftirfarandi bókun "USN nefnd fer fram á að farið verði í óverulega breytingu á deiliskipulagi og að jafnframt fari fram grenndarkynning fyrir Faxaflóahöfnum og Elkem vegna þess að fyrirhuguð bygging fer út fyrir byggingareit.
Skipulagsfulltrúa falið að vinna málið áfram."
USN nefnd leggur til við sveitarstjórn að heimila óverulega breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar að undangenginni grenndarkynningu fyrir Faxaflóahöfnum og Elkem.

10.Óskað eftir að skipulögð frístundabyggð í landi Beitistaða (sunnan þjóðvegar) verði breytt í íbúðabyggð.

1503044

Borist hefur erindi frá eigendum lands og lóða í frístundabyggð sunnan þjóðvegar í landi Beitistaða þar sem óskað er eftir því að frístundabyggð verði breytt í íbúðabyggð. Erindið var tekið fyrir á fundi sveitarstjórnar 24. mars 2015 og gerð eftirfarandi bókun: "Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að vísa erindinu til USN nefndar."
Málinu frestað. Skipulagsfulltrúa og byggingarfulltrúa er falið að afla frekari gagna.

11.Skotsvæði Skotfélags Akraness innan sveitarfélagsmarka Hvalfjarðarsveitar og fyrirhuguð breyting á notkun þess með nýrri riffilbraut.

1406009

Á 41. fundi USN nefndar 30. júní 2014 var málinu frestað og ákveðið að oddviti, formaður USN nefndar og skipulagsfulltrúi myndu funda með Skotfélagi Akraness og íbúum á Ósi. Sá fundur var haldinn 18. febrúar 2015.
Skipulagsfulltrúi hefur rætt við heilbrigðiseftirlit Vesturlands og hljóðverkfræðing varðandi málið. Skipulagsfulltrúa falið að kanna kostnað við hljóðmælingar og móta verklagsreglur varðandi þær og leggja fyrir hlutaðeigandi aðila.

12.Hvítanes 2 - Niðurrif - Fok á mannvirkjum

1503045

Eyðilegging á mannvirkjum á Hvítanesi 2 vegna óveðurs þann 14. mars s.l. Byggingar ónýtar. Óskað er eftir samþykki á niðurfellingu á matshlutum. Um er að ræða matshluta 05+06+07+08+10+11+13+14+15+16+20+21
USN nefnd leggur til við sveitarstjórn að heimila afskráningu mannvirkja, lnr. 133633 Hvítanes 2, mhl.05,06,07,08,10,11,13,14,15,16,20 og 21. Byggingarfulltrúa falið að vinna málið áfram.

13.Akrakot - Stofnun lóðar - Akrakot 1

1504020

Sótt er um að stofna íbúðarhúsalóð í landi Akrakots, lnr. 133677. Íbúðarhúsalóðin er undir íbúaðarhúsinu sem er með mhl. 02 með fastanr. 210-5095.
USN nefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja stofnun íbúðarhúsalóðar.

14.Vallarnesland C - Gróðurhús

1504021

Sótt er um byggingarleyfi fyrir 30 fm. gróðurhúsi við hlið sumarhúss sem er á Vallarneslandi C.
USN nefnd leggur til við sveitarstjórn að veita byggingarleyfi. sbr. 3 mgr. 4. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

15.Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 33

1504004F

Fundargerð

16.Ráðstefnur og fundir 2015

1504030

Fundir og ráðstefnur sem skipulags- og umhverfisfulltrúi eða nefndarmenn hafa sótt.
Skipulags- og umhverfisfulltrúi og nefndarmenn gerðu grein fyrir námskeiðum, ráðstefnum og fundum sem þau hafa sótt undanfarna mánuði. Þar má helst nefna göngustíganámskeið á vegum Ferðamálastofu, úrgangsráðstefnu á vegum Sambands íslenskra sveitarfélaga og Landgræðslunnar og ársfundur umhverfisstofnunar.

Fundi slitið - kl. 19:00.

Efni síðunnar