Fara í efni

Umhverfis- skipulags- og náttúruverndarnefnd 2013-2022

52. fundur 11. mars 2015 kl. 15:30 - 18:00 í stjórnsýsluhúsinu Innrimel 3
Nefndarmenn
  • Arnheiður Hjörleifsdóttir aðalmaður
  • Daníel Ottesen aðalmaður
  • Guðjón Jónasson aðalmaður
  • Ása Hólmarsdóttir aðalmaður
  • Ólafur Ingi Jóhannesson aðalmaður
  • Ólafur Melsted embættismaður
  • Guðný Elíasdóttir embættismaður
Fundargerð ritaði: Ása Hólmarsdóttir nefndarmaður
Dagskrá
DO vék af fundi kl: 17:25 og ÓIJ kl: 18:20

1.Dagur umhverfis 2015

1503007

Dagur umhverfisins er 25. apríl nk.
USN-nefnd hefur fengið boð frá umhverfisnefnd Heiðarskóla um að taka þátt í umhverfisráðstefnu miðvikudaginn 22. apríl í tengslum við Dag umhverfisins sem verður 25. apríl nk. Nefndin þiggur boðið með þökkum og hefur leitað til Íslenska Gámafélagsins um að senda fulltrúa á ráðstefnuna sem jafnframt héldi stutt erindi um umhverfismál og flokkun og segði viðstöddum einnig frá fjölnota poka sem fyrirhugað er að framleiða fyrir Hvalfjarðarsveit að áeggjan nemenda í skólum Hvalfjarðarsveitar.
Einnig hyggst nefndin, í samstarfið við Íslenska Gámafélagið, endurútgefa flokkunarhandbók með upplýsingum um flokkun og fleira í tengslum við Dag umhverfisins.
Þá stefnir nefndin að því að bjóða sveitungum og öðrum áhugasömum í gönguferð um áhugavert svæði í Hvalfjarðarsveit á Degi umhverfisins þann 25. apríl nk.

2.Grundartangi - flæðigryfja -urðun spilliefna frá GMR

1502037

VSÓ Ráðgjöf fh. GMR óskar eftir umsögn um fyrirhugaða förgun GMR í flæðigryfjur á Grundartangasvæðinu.
USN-nefnd bendir á að umrædd starfsemi er háð framkvæmdaleyfi, sbr. 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Flæðigryfjur sem þessar eru jafnframt starfleyfisskyldar og er líklegt að kanna þurfi með matsskyldu þ.e. hvort framkvæmdin sé háð mati á umhverfisáhrifum skv. lögum nr. 106/2000. Þá bendir nefndin á að flæðigryfjurnar á Grundartanga falla undir umhverfisvöktun samkvæmt umhverfisvöktunaráætlun sem samþykkt er af Umhverfisstofnun og gildir fyrir árin 2012-2021. USN-nefnd telur auk þess nauðsynlegt að nánari grein sé gerð fyrir þeim úrgangsefnum sem fyrirhugað er að urða og að lagt sé mat á efnasamsetningu þeirra m.t.t. þeirra efna sem nú þegar eru urðuð í flæðigryfjum á svæðinu. USN nefnd treystir sér ekki til að taka afstöðu til fyrirspurnarinnar fyrr en frekari gögn liggja fyrir.

3.Vorhreinsun 2015

1503006

Byggingar- og skipulagsfulltrúi kynntu stöðu vorhreinsunar síðustu ára.
Byggingarfulltrúi lagði fram gögn um vorhreinsun síðasta árs.
Málið áfram í vinnslu nefndarinnar.
Umhverfis- og skipulagsfulltrúa falið að vinna málið áfram.

4.Umhverfisnefnd Heiðarskóla.

1502015

Fundir voru haldnir fimmtudaginn 26. febrúar sl. í Heiðarskóla og í leikskólanum Skýjaborg með umhverfisnefnd grunnskóla og leikskóla.
USN nefnd þakkar góðar móttökur sem hún fékk í skólunum og þiggur boð um þátttöku í umhverfisráðstefnunni 22. apríl nk. Einnig fagnar nefndin áhuga nemenda á báðum skólastigum á að minnka plastnotkun og mun styðja við verkefnið.

5.Erindisbréf nefnda

1111013

Nefndarmönnum var falið að kynna sér erindisbréf á síðasta fundi USN nefndar.
Drög að uppfærðu erindisbréfi rædd.
Umhverfis- og skipulagsfulltrúa falið að vinna málið áfram og gera breytingar í samræmi við umræður á fundinum.

6.Skráning póstnúmera m.t.t. uppruna úrgangs.

1502048

Borist hefur erindi frá Sorpurðun Vesturlands varðandi skráningu póstnúmera m.t.t. uppruna úrgangs.
Lagt fram og kynnt.

7.Stefnumótun USN nefndar

1503014

Sveitarstjórn hefur hafið vinnu við stefnumótun í málefnum sveitarfélagsins.
Formaður nefndarinnar kynnti drög að stefnumótunarvinnu fyrir USN nefnd.
Nefndarmönnum falið að kynna sér málið milli funda.
Stefnt að vinnufundi þann 24. mars n.k kl:17.

8.Ráðstefna - úrgangsnýting

1503015

Borist hefur erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga varðandi leiðir sveitarfélaga til betri úrgangsnýtingar. Um er að ræða tvær ráðstefnur annarsvegar fimmtudaginn 19. mars 2015 í Reykjavík og hinsvegar föstudaginn 20. mars 2015 í Gunnarsholti.
USN fjallaði um erindið og tók ákvörðun um að fulltrúi sveitarfélagsins á ráðstefnum þessum yrði umhverfis - og skipulagsfulltrúi.

9.Tilkynning frá Atvinnu- og nýsköpunarráðuneytinu um styrkveitingu til framkvæmda við göngustíga, uppgræðslu og öryggisframkvæmdir við Glym í Botnsdal í Hvalfirði.

1406013

Borist hefur erindi frá Atvinnu- og nýsköpunarráðuneyti varðandi styrk frá Framkvæmdasjóði ferðamanna vegna verkefnisins "Glymur í Botnsdal" að upphæð kr. 830.000.
USN nefnd fagnar styrkveitingunni.
Fyrirhugað er að halda fund með landeigendum þann 17. mars n.k. kl:16 í stjórnsýsluhúsi Hvalfjarðarsveitar.

10.Breyting deiliskipulags lóða á stóriðnaðarsvæði við Grundartanga, Norðurál

1409023

Erindi barst frá Norðuráli hf. dags. 5.mars s.l um skipulagsmál vegna aukningar framleiðslu Norðuráls á Grundartanga.
Málinu frestað og umhverfis- og skipulagsfulltrúa falið að afla frekari gagna.

11.Óveruleg breyting á deiliskipulagi vestursvæðis við Grundatanga, lóð Kratus hf.

1502019

Málinu var frestað á síðasta fundi USN nefndar vegna ófullnægjandi gagna. Fullnægjandi gögn óverulegrar breytingar á deiliskipulagi vestursvæðis á Grundartanga vegna lóðar Klafastaðavegar 4. Breytingin er fólgin í stækkun byggingarreitar um 87 fm í átt að Klafastaðavegi.
USN nefnd leggur til við sveitarstjórn að heimila óverulega breytingu á deilskipulagi lóðarinnar að undangenginni grenndarkynningu fyrir Klafastaðavegi 1, 2, 2a og 6 og Tangavegi 1 og 3 en áréttar jafnframt við umsækjanda, að fylgja í einu og öllu þeim skilmálum sem nú þegar hafa verið samþykktir fyrir svæðið. Nefndin bendir sérstaklega á almenna skilmála er varðar mengunarvarnarbúnað og loftræsikerfi en hvoru tveggja skal vera af bestu gerð. Þá er þess krafist að sérstaklega sé hugað að meðferð úrgangs, honum haldið í lágmarki og hann fluttur jöfnum höndum úr landi. Þá skal frágangur lóða vera í samræmi við aðaluppdrætti og öllum framkvæmdum við hús og á lóð, þar með talið frágangur lóðar með bundnu slitlagi gróðri og umhverfi, skal lokið innan fjögurra ára frá úthlutun lóðar.

12.Litli Sandur - Olíustöð - Lnr. 192332 - Stofnun lóða 1 3 4

1503002

Sótt er um stofnun lóða nr. 1,3 og 4 á Litla Sandi - Olíudreifing ehf.
USN nefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja stofnun lóðanna.

13.Mýrarholtsvegur 2, Grundartanga.

1503018

Sótt er um leyfi fyrir byggingu atvinnuhúsnæðis. Húsið er úr steinsteyptum einingum og burðarvirki þaks er úr límtré. Húsið er að hluta til á tveimur hæðum. Húsið er skipulagt sem lager og verkstæði auk skrifstofurýma og aðstöðu fyrir starfsmenn.
USN nefnd fer fram á að farið verði í óverulega breytingu á deiliskipulagi og að jafnframt fari fram grenndarkynning fyrir Faxaflóahöfnum og Elkem vegna þess að fyrirhuguð bygging fer út fyrir byggingareit.
Skipulagsfulltrúa falið að vinna málið áfram.

14.Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 32

1503004F

Lagt fram og kynnt.

Fundi slitið - kl. 18:00.

Efni síðunnar