Fara í efni

Umhverfis- skipulags- og náttúruverndarnefnd 2013-2022

47. fundur 31. október 2014 kl. 12:30 - 14:30 í stjórnsýsluhúsinu Innrimel 3
Nefndarmenn
  • Arnheiður Hjörleifsdóttir aðalmaður
  • Daníel Ottesen aðalmaður
  • Guðjón Jónasson aðalmaður
  • Ása Hólmarsdóttir aðalmaður
Fundargerð ritaði: Ása Hólmarsdóttir
Dagskrá
ÓIJ boðaði forföll og varamenn gátu ekki komist í hans stað vegna lítils fyrirvara.

1.Ályktun sem samþykkt var á aðalfundi Skógræktarfélagsins 2014.

1410019

Á 182. fundi sveitarstjórnar var málinu vísað til USN nefndar.
Erindið framlagt.

2.Breyting aðalskipulags Hvalfjarðarsveitar 2008-2020, Melahverfi

1410061

Tillaga breytingar aðalskipulags Hvalfjarðarsveitar 2008-2020 er varðar þéttbýlisuppdrátt Melahverfis er lögð fram í samræmi við ákvörðun 182. fundar sveitarstjórnar er varðar breytta landnotkun íbúðarlóðar Lækjarmels 14 í opið svæði til sérstakra nota.
USN nefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja óverulega breytingu aðalskipulags þéttbýlisuppdráttar sbr. 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og senda tillöguna til Skipulagsstofnunar til staðfestingar.

3.Deiliskipulag Melahverfis

1409031

Tillaga óverulegrar breytingar deiliskipulags Melahverfis er lögð fram í samræmi við ákvörðun 182. fund sveitarstjórnar er varðar breytta landnotkun íbúðarlóðar Lækjarmels 14 í opið svæði til sérstakra nota.
USN nefnd leggur til við sveitarstjórn að auglýsa óverulega breytingu deiliskipulags sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og hún grenndarkynnt fyrir íbúum Lækjarmels 10, 16 og Hagamels 13.

4.Deiliskipulag Bjarkaráss í landi Beitistaða

1407014

Í samræmi við bókun 42. fundar USN nefndar er lögð fram tillaga deiliskipulags. Tillagan hefur verið kynnt íbúum Bjarkarás á íbúafundi þann 29. sept. sl. og haldinn fundur með lóðarhafa Bjarkarás 1 í kjölfarið. Fornleifaskráning var framkvæmd af Bjarna F. Einarssyni í september 2014. Tvær minjar fundust og er tekið tillit til þeirra í fyrirliggjandi tillögu deiliskipulags. Þar sem allar meginforsendur liggja fyrir í aðalskipulagi er ekki þörf á lýsingu deiliskipulags.
USN nefnd leggur til við sveitarstjórn að auglýsa deiliskipulag sbr. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

5.Glammastaðir ehf. kt: 480113-0470.

1303047

Erindi, dags. 6. okt. 2014 barst frá Atla Má Ingólfssyni, hdl. f. h. forsvarsmanna Valz ehf. varðandi skiptingu lands út úr landi jarðarinnar Glammastaða. Á 44. fundi USN nefndar var umsækjanda gefinn frestur til 8. október 2014 til að leggja fram samþykki eigenda aðliggjandi lands. Ella verði erindinu synjað þar sem fullnægjandi gögn hafi ekki verið lögð fram.
Erindi bréfritara er rætt og ferill málsins. Skipulagsfulltrúa er falið að undirbúa svar við erindinu í samráði við sveitarstjóra. Afgreiðslu frestað.

6.Ósk um undanþágu frá skipulagsreglugerð nr. 90/2013 um fjarlægð milli bygginga og vega, Glammastaðir.

1410029

Erindi barst, dags. 8. okt. 2014, frá Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu þar sem óskað er umsagnar Hvalfjarðarsveitar um unanþágu frá d-lið 5.3.2.5. gr. skipulagsreglugerðar nr. 90/2013 þar sem kveðið er á um lágmarksfjarlægð bygginga frá stofn- og tengivegum. Um er að ræða fjarlægð frá Svínadalsvegi, sem skilgreindur er sem tengivegur, að fyrirhuguðu íbúðarhúsi í landi Glammastaða, landnr. 190661. Hjálagður er uppdráttur með erindi frá Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu er varðar afmörkun lands úr landi Glammastaða, dags. 15. jan. 2013. Afmörkun landsins eða skipulag þess hefur ekki hlotið samþykki sveitarfélagsins.
USN nefnd leggur til við sveitarstjórn að gera ekki athugasemdir við að veitt verði undanþága frá skipulagsreglugerð eins og að ofan greinir er varðar fjarlægð frá Svínadalsvegi að fyrirhuguðu íbúðarhúsi í landi Glammastaða, landnr. 190661, svo fremi sem fjarlægð frá vegi að íbúðarhúsi verði að lágmarki 50 metrar.
Nefndin beinir því til ráðuneytis að einnig verði leitað umsagnar Vegagerðarinnar vegna málsins.

7.Umhverfisvænni margnota pokar.

1410030

Á 182. fundi sveitarstjórnar var málinu vísað til USN nefndar.
Nefndinni líst vel á erindið og leggur til við sveitarstjórn að gert verði ráð fyrir fjármagni til kaupa á taupokum fyrir heimili í Hvalfjarðarsveit á næsta fjárhagsári.
Nefndin þakkar leikskólanum Skýjaborg fyrir erindið og væntir samstarfs við skólann í tengslum við verkefnið.

8.Ölver 13 - Viðbygging

1410011

Sótt er um að byggja viðbyggingu við Ölver 13.
Sumarhúsið er 128,8 m2 og viðbyggingin 77,2 m2 og mun birt flatarmál verða 206 m2. Í gildi er deiliskipulagið Ölver og Móhóll. Engir skilmálar eru fyrir svæðið og gildir því byggingarreglugerð nr. 177 frá 1992. Ofangreind stækkun samræmist ekki byggingarreglugerðinni.
USN nefnd leggur til við sveitarstjórn að grenndarkynna óverulega breytingu deiliskipulags, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, fyrir lóðarhöfum Ölvers 3,4,7,8,10,14,19 og 25 og landeiganda.

9.Aðalskipulagsbreyting á stefnumörkun iðnaðarsvæða.

1403029

Sveitarstjórn samþykkti þann 12. ágúst sl. að auglýsa tillögu að breytingu stefnumörkunar Aðalskipulags Hvalfjarðarsveitar 2008-2020 sbr. 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var auglýst frá 29. ágúst til og með 10. október 2014. Athugasemdir bárust frá VSÓ ráðgjöf f. h. Silicor (dags. 3. okt. 2014), Faxaflóahöfnum (dags. 4. okt. 2014), Logos f. h. Norðuráls (dags. 3. júní 2014), Kjósarhreppi (dags. 8. okt. 2014) og Umhverfisvaktinni við Hvalfjörð (dags. 9. okt. 2014) við auglýstri tillögu.
Frestað.

10.Breyting aðalskipulags iðnaðar- og athafnasvæðis á Grundartanga

1311026

Sveitarstjórn samþykkti þann 12. ágúst sl. að auglýsa tillögu að breytingu landnotkunar Aðalskipulags Hvalfjarðarsveitar 2008-2020 sbr. 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var auglýst frá 29. ágúst til og með 10. október 2014. Athugasemdir bárust frá Logos f. h. Norðuráls (dags. 3. júní 2014), Norðuráli (dags. 10. okt. 2014), Kjósarhreppi (dags. 8. okt. 2014, Umhverfisvaktinni við Hvalfjörð (dags. 9. okt. 2014), Ragnheiði Þorgrímsdóttur, Kúludalsá (dags. 8. okt. 2014), Landeigenda Kalastaða (vantar dags.), lóðahafa Birkihlíðar 30, 31, 32 og 34 í landi Kalastaða (dags. 1. okt. 2014), Hallfreði Vilhjálmssyni, Kambshóli (dags. 6. okt. 2014), Þórarni Jónssyni (dags. 2. okt. 2014) og Sigurbirni Hjaltasyni, Kiðafelli (dags. 10. okt. 2014) við auglýstri tillögu.
Frestað. Skipulagsfulltrúa falið að leita álits hljóðverkfræðings í samræmi við þær ábendingar sem bárust við auglýsta tillögu.

11.Breyting deiliskipulags austursvæðis við Grundartanga

1406020

Sveitarstjórn samþykkti þann 12. ágúst sl. að auglýsa tillögu að breytingu deiliskipulags austursvæðis við Grundartanga sbr. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var auglýst frá 29. ágúst til og með 10. október 2014. Athugasemdir bárust frá Norðuráli (dags. 10. okt. 2014), Kjósarhreppi (dags. 8. okt. 2014, Umhverfisvaktinni við Hvalfjörð (dags. 9. okt. 2014), Ragnheiði Þorgrímsdóttur, Kúludalsá (dags. 8. okt. 2014), Landeigenda Kalastaða (vantar dags.), lóðahafa Birkihlíðar 30, 31, 32 og 34 í landi Kalastaða (dags. 1. okt. 2014), Hallfreði Vilhjálmssyni, Kambshóli (dags. 6. okt. 2014), Þórarni Jónssyni (dags. 2. okt. 2014) og Sigurbirni Hjaltasyni, Kiðafelli (dags. 10. okt. 2014) við auglýstri tillögu.
Frestað. Skipulagsfulltrúa falið að leita álits hljóðverksfræðings í samræmi við þær ábendingar sem bárust við auglýsta tillögu.

12.Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 30

1410004F

Lagt fram
  • 12.1 1402021 Hlíð - Smáhýsi mhl.23
    Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 30 Gjöld:
    Afgreiðslugjald kr. 9.900,-
    Byggingarleyfisgjald 33,5 m², kr. 10.050,-
    Yfirferð uppdrátta kr. 15.300,-
    Úttektargjald 3 skipti kr. 29.700,-
    Lokaúttekt kr. 13.700,-
    Heildargjöld samtals kr. 78.650,-

    Samrýmist skipulagi og er samþykkt
  • 12.2 1107016 Kjarrás 19 - Frístundarhús mhl.02
    Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 30 Gjöld:
    Rotþróargjald í samræmi við fasteignargjöldin fyrir árið 2014 kr. 8.300,-
    Heildargjöld kr. 8.300,-
  • 12.3 1409034 NA - Mhl.56 - Kerbrotabygging
    Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 30 Gjöld:
    Afgreiðslugjald kr. 9.900,-
    Byggingarleyfisgjald 300 kr. x 841,5 m² samtals kr. 252.450,-
    Yfirferð uppdrátta kr. 15.300,-
    Úttektargjald 20 skipti kr. 198.000,-
    Lokaúttekt kr. 55.200,-
    Heildargjöld samtals kr. 530.850,-

    Samrýmist skipulagi og er samþykkt.
  • 12.4 1410009 Stofnun lóða - Hafnarskógur 81 úr Höfn 2
    Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 30 Gjöld:
    Umsýsla vegna stofnun lóðar kr. 15.200,-
    Heildargjöld kr. 15.200,-
  • 12.5 1408006 Stóri-Lambhagi 1 - Stóri Lambhagi 1a - Stofnun lóðar
    Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 30 Gjöld:
    Umsýsla vegna stofnun lóðar kr. 15.200,-
    Heildargjald kr. 15.200,-
  • 12.6 1407018 Æðarholt - Ásgarður - Sameining lóða
    Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 30 Gjöld:
    Umsýsla vegna breytingar á lóð kr. 15.200,-
    Heildargjöld kr. 15.200,-
  • 12.7 1408003 Ytri Hólmur 1 - Niðurrif - Mhl. 09 og 10
    Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 30 Gjöld:
    Afgreiðslugjald kr. 9.900,-
    Heildargjöld samtals kr. 9.900,-
    Búið er að rífa matshluta.

13.Umsögn um umsókn Vatnsveitufélags Hvalfjarðarsveitar um nýtingarleyfi neysluvatns í landi Hlíðarfótar í Svínadal í Hvalfjarðarsveit.

1409013

Erindi lagt fram

Fundi slitið - kl. 14:30.

Efni síðunnar