Fara í efni

Umhverfis- skipulags- og náttúruverndarnefnd 2013-2022

60. fundur 14. október 2015 kl. 15:30 í stjórnsýsluhúsinu Innrimel 3
Nefndarmenn
  • Arnheiður Hjörleifsdóttir aðalmaður
  • Daníel Ottesen aðalmaður
  • Guðjón Jónasson aðalmaður
  • Ása Hólmarsdóttir aðalmaður
  • Ólafur Ingi Jóhannesson aðalmaður
  • Ólafur Melsted embættismaður
Fundargerð ritaði: Ása Hólmarsdóttir
Dagskrá
Daníel Ottesen vék af fundi kl: 18:00

1.Fjárhagsáætlun 2016.

1508008

Undirbúningur fyrir fjárhagsáætlun 2016
Haldinn verður vinnufundur um fjárhagsáætlun nefndarinnar föstudaginn 16. október kl 9.

2.Silicor - Hönnunarfundur

1510001

2. september 2015 var haldinn fundur með fulltrúum Silicor vegna fyrirhugaðra byggingaáforma Silicor á Grundartanga. Fundinn sátu fyrir hönd sveitarfélagsins sveitarstjóri, byggingarfulltrúi og skipulags- og umhverfisfulltrúi.
Fundargerð fundar lögð fram og kynnt.

3.Sorphirða - útboð á sorphirðu 2016-2020

1509042

Borist hefur erindi frá Akraneshreppi varðandi sorphirðu. Haldinn var samráðsfundur 18. september 2015 þar sem rætt var um framhald samvinnu í sorphirðumálum en sorphirðusamningur við IGF (Íslenska Gámafélagið) rennur út á næsta ári.
USN nefnd leggur til við sveitarstjórn að nýtt verði framlengingarákvæði samnings við Íslenska Gámafélagið frá árinu 2010 og samningur um sorphirðu verði framlengdur til 31. ágúst 2016.

4.Grenndarstöðvar - IGF

1509045

Borist hefur erindi frá Íslenska gámafélaginu varðandi grenndarstöðvar.
Lagt fram og kynnt.

5.Samkomulag um grænar áherslur í starfsemi, uppbyggingu, gatnagerð og frágangi lóða á Grundartanga.

1505002

Á 54. fundi USN nefndar 20. maí 2015 var gerð eftirfarandi bókun þar sem m.a. kemur fram: "USN nefnd leggur til við sveitarstjórn að skipa formann USN nefndar sem fulltrúa Hvalfjarðarsveitar í þessa stefnumótunarvinnu og jafnframt óska eftir tilnefningu frá Faxaflóahöfnum." Á 197. fundi sveitarstjórnar 26. maí var tillagan samþykkt. Í bréfi Faxaflóahafna dags. 12.júní 2015 var skipulags- og umhverfisfulltrúa Hvalfjarðarsveitar tilkynnt að hafnarstjórn hefði tilnefnt hafnarstjóra í starfshópinn.
Lagt fram.

6.Kynning á starfsleyfi -olíubirgðastöð að Litla Sandi og Digralæk - Olíudreifing ehf.

1509046

Borist hefur erindi frá Umhverfisstofnun dags. 21. september 2015 varðandi starfsleyfi fyrir olíubirgðastöð í Hvalfirði. Tillaga að starfsleyfi er til kynningar frá 24. september til 19. nóvember 2015.
USN nefnd felur skipulagsfulltrúa, AH og ÁH að vinna drög að athugasemdum vegna tillögu að starfsleyfi fyrir olíubirgðastöð að Litla-Sandi og Digralæk fyrir 13. nóv. nk.

7.Kortlagning hávaða frá Grundartanga

1505017

Á 54. fundi USN nefndar 20. maí 2015 var gerð eftirfarandi bókun: "USN nefnd leggur til við sveitarstjórn að sveitarstjóra, formanni USN nefndar og skipulags- og umhverfisfulltrúa verði falið að hefja viðræður við Faxaflóahafnir um hljóðmælingar og kortlagningu hávaða frá iðnaðarsvæðinu á Grundartanga í samræmi við reglugerð um kortlagningu hávaða og aðgerðaráætlun nr. 1000/20015." Á 197. fundi sveitarstjórnar 26. maí var tillagan samþykkt. Í bréfi Faxaflóahafna dags. 12. júní 2015 var skipulags- og umhverfisfulltrúa Hvalfjarðarsveitar tilkynnt eftirfarandi: "Hafnarstjórn samþykkir tillögu Hvalfjarðarsveitar um hljóðmælingar á Grundartanga og felur hafnarstjóra málið. Hafnarstjórn samþykkir að auki að fela hafnarstjóra að láta gera úttekt á lýsingu á Grundartanga, sem miði að því að uppfylla öryggisskilyrði lýsingar, en þó þannig að dregið verði úr áhrifum lýsingar út fyrir atvinnusvæðið eins og kostur er."
USN nefnd fagnar áhuga hafnarstjórnar um hljóðmælingar á Grundartanga og því að ákveðið hefur verið að láta gera úttekt á lýsingu á Grundartanga þannig að dregið verði úr áhrifum lýsingar út fyrir atvinnusvæðið eins og kostur er. Skipulagsfulltrúa og formanni falið að fylgja málinu eftir.

8.Umhverfisvöktun iðnaðarsvæðis Grundartanga

1505016

Á 54. fundi USN nefndar 20. maí 2015 var gerð eftirfarandi bókun: "Skipulags- og umhverfisfulltrúa er falið að hafa samband við verkefnisstjóra umhverfisvöktunarinnar og óska eftir kynningu á niðurstöðum vöktunarinnar fyrir USN nefnd."
Magnús Freyr Ólafsson, verkefnisstjóri umhverfisvöktunar iðjuveranna á Grundartanga og Einar Friðgeir Björnsson, framkvæmdastjóri umhverfis- og verkfræðisviðs Norðuráls kynntu niðurstöður umhverfisvöktunarinnar fyrir nefndinni. USN nefnd þakkar kynninguna. Jafnframt felur USN nefnd skipulags - og umhverfisfulltrúa að boða fulltrúa frá Umhverfisstofnun, Nýsköpunarmiðstöð og eftir atvikum fleiri sérfræðinga á fund nefndarinnar til að fara betur yfir ákveðna þætti vöktunaráætlunarinnar.

9.Kúludalsá - Endurnýjun á vatnslögn - Ósk um styrk

1508026

Á 59. fundi USN nefndar 15. september 2015 var gerð eftirfarandi bókun: "Málinu frestað þar til frekari gögn berast í samræmi við reglur sveitarfélagsins um "styrktarsjóð vegna endurbóta á vatnsveitum tengdum íbúðarhúsum.""
Fullnægjandi gögn hafa borist sveitarfélaginu. USN nefnd samþykkir að beina því til sveitarstjórnar að verða við umsókn bréfritara og greiða helming kostnaðar við endurbæturnar, krónur 242.688, enda er verkið í fullu samræmi við reglur sjóðsins.

10.Kynning á tillögu að starfsleyfi fyrir Norðurál Grundartanga

1510025

Borist hefur erindi frá Umhverfisstofnun dags. 19. ágúst 2015 varðandi starfsleyfi álvers Norðuráls á Grundartanga. Tillaga að starfsleyfi er til kynningar frá 25. ágúst til 20. október 2015.
USN nefnd felur skipulagsfulltrúa, AH og ÁH að vinna drög að athugsemdum vegna tillögu að starfsleyfi fyrir Norðurál Grundartanga fyrir 19. okt. nk.

11.Breyting deiliskipulags lóða á stóriðnaðarsvæði við Grundartanga, Norðurál

1409023

Á 59. fundi USN nefndar 15. september 2015 var gerð eftirfarandi bókun: "USN nefnd felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að vinna drög að svörum við athugasemdum og leggja fyrir næsta fund nefndarinnar."
Skipulagsfulltrúi lagði fram drög að svörum við þeim athugsemdum sem bárust. USN nefnd felur skipulagsfulltrúa og lögmanni sveitarfélagsins að fullvinna svörin í samræmi við ábendingar nefndarfólks og leggja fyrir næsta fund nefndarinnar.

12.Óskað eftir að skipulögð frístundabyggð í landi Beitistaða (sunnan þjóðvegar) verði breytt í íbúðabyggð.

1503044

Erindið var tekið fyrir á 53. fundi USN nefndar 22. apríl 2015 og gerð var eftirfarandi bókun: "Málinu frestað. Skipulagsfulltrúa og byggingarfulltrúa er falið að afla frekari gagna"
Málinu frestað og skipulags- og byggingarfulltrúa falið að hafa samband við bréfritara og afla frekari gagna.

13.Norðurál - Lóðarstækkun

1509038

Borist hefur erindi frá Faxaflóahöfnum dags. 16. september 2015 þar sem reifað er erindi Norðuráls til Faxaflóahafna varðandi lóðarstækkun. Haldinn var fundur 2.okt. 2015 með fulltrúum Faxaflóahafna og sveitarstjóra, byggingarfulltrúa og skipulags- og umhverfisfulltrúa þar sem málið var kynnt.
Skipulagsfulltrúa falið að senda Faxaflóahöfnum umbeðin gögn þegar þau liggja fyrir.

14.Auglýsingarskilti við Hvalfjarðargöng

1509043

Borist hefur erindi frá Knattspyrnudeild ÍA þar sem óskað er eftir upplýsingum frá Hvalfjarðarsveit um takmarkanir eða skyldur varðandi núverandi auglýsingaskilti Krónunnar við hringtorg norðan Hvalfjarðarganga.
Skipulagsfulltrúa falið að kanna málið fyrir næsta fund USN nefndar.

15.Deiliskipulag hafnar-, iðnaðar- og athafnasvæðis á Grundartanga, austursvæði - breyting á deiliskipulagi hafnarsvæðis, austursvæðis

1510022

Borist hefur erindi frá Faxaflóahöfnum varðandi breytingu á deiliskipulagi hafnar-, iðnaðar- og athafnasvæðis á Grundartanga, austursvæði.
USN nefndarmenn óskuðu eftir lengri tíma til að kynna sér gögnin, málinu frestað.

16.Beitistaðaland - Hesthús

1509044

Sótt er um byggingarleyfi fyrir 118,8 fm hesthúsi í Beitistaðalandi (lnr. 193084).
USN leggur til við sveitarstjórn að grenndarkynna byggingarleyfi skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir eigendum eftirfarandi landnúmera: 198834, 195205 og 190959.

17.Ferstikla 1 - Stofnun lóðar - Gróðurstikla

1509056

Sótt er um að stofna lóð úr landinu Ferstikla 1, lnr.133168. Um er að ræða lóð undir útihús sem eru á jörðinni. Óskað er eftir að nýja lóðin muni heita Gróðurstikla og vera 2600 fm að stærð.
USN nefnd leggur til við sveitarstjórn að heimila stofnun lóðar úr landi Ferstiklu 1, lnr. 133168 sem nefnd verði Gróðurstikla og verði 2600 fm. að stærð.

18.Skálatangi 2 - Ósk um nafnabreytingu - Skálavík - Lnr.133712

1509051

Sótt er um nafnabreytingu á íbúðarhúsalóðinni Skálatangi 2, landnúmer 133712. Óskað er eftir að lóðin muni heita Skálavík.
USN nefnd telur að nafnabreyting þessi sé í samræmi við lög um örnefni nr. 22/2015 og gerir því ekki athugasemdir við breytinguna.

Fundi slitið.

Efni síðunnar