Fara í efni

Sveitarstjórn

192. fundur 10. mars 2015 kl. 16:00 - 18:00 í stjórnsýsluhúsinu Innrimel 3
Nefndarmenn
  • Björgvin Helgason oddviti
  • Arnheiður Hjörleifsdóttir varaoddviti
  • Jónella Sigurjónsdóttir vararitari
  • Ása Helgadóttir aðalmaður
  • Daníel Ottesen aðalmaður
  • Ólafur Ingi Jóhannesson 1. varamaður
Fundargerð ritaði: Skúli Þórðarson sveitarstjóri
Dagskrá
Björgvin Helgason oddviti setti fundinn og bauð sveitarstjórnarmenn velkomna til fundar og var síðan gengið til áður boðaðrar dagskrár.

Oddviti leitaði afbrigða um að bæta á dagskrá fundarins sem 14. dagskrárlið; "Skýrsla sveitarstjóra." og var það samþykkt með 6 atkvæðum.

Stefán G. Ármannsson boðaði forföll.
Hjördís Stefánsdóttir boðaði forföll vegna veðurs.

1.Sveitarstjórn - 191

1502003F

Fundargerðin framlögð.

2.Ársreikningur Hvalfjarðarsveitar 2014.

1502041

Seinni umræða.
Oddviti lagði Ársreikning Hvalfjarðarsveitar 2014 fram til síðari umræðu og afgreiðslu í sveitarstjórn ásamt eftirfarandi bókun:
"Rekstrarafgangur ársins 2014 nam 4,5 millj. kr. Tekjur ársins námu 632 millj. kr. og voru um 20 millj. kr. hærri en áætlun gerði ráð fyrir. Rekstrargjöld námu 644 millj. kr. og hækkuðu um 37 millj. kr. frá árinu 2013. Til fræðslumála, sem er langstærsti málaflokkurinn, var varið 384,4 millj. kr. sem er 63,5 % af skatttekjum. Veltufé frá rekstri nam 42,9 millj. kr. og veltufjárhlutfall var 0,5. Heildarfjárfesting ársins nam 237,1 millj. kr. og handbært fé í árslok var 660 þús. kr.
Megin niðurstaða efnahagsreiknings er að fastafjármunir nema 2.320 millj. kr. og eignir samtals 2.367 millj. kr. Skuldir og skuldbindingar nema samtals 285,9 millj. kr. Eigið fé sveitarfélagsins var í árslok 2.082 millj. kr."
Reikningurinn borinn undir atkvæði og var hann samþykktur með 6 atkvæðum.
Að lokinni afgreiðslu undirrituðu sveitarstjórnarmenn framlagðan ársreikning.

3.Aðalfundarboð-Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi- Símenntunarmiðstöðin-Heilbrigðisnefnd-Sorpurðun og Vesturlandsstofa.

1503009

Aðalfundirnir verða haldnir á Hótel Hamri, Borgarnesi miðvikudaginn 25. mars n.k..
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu um skipan aðal- og varamanna á eftirtalda aðalfundi sem haldnir verða þann 25. mars nk.:
Á aðalfund Heilbrigðisnefndar Vesturlands kl. 11:00
Aðalmaður: Ása Helgadóttir
Varamaður: Björgvin Helgason
Á aðalfund Sorpurðunar Vesturlands kl. 12:45
Aðalmaður: Ása Helgadóttir
Varamaður: Björgvin Helgason
Á aðalfund SSV kl. 14:30
Aðalmenn: Ása Helgadóttir og Björgvin Helgason
Varamenn: Daníel Ottesen og Skúli Þórðarson
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 6 atkvæðum.

4.Aðalfundaboð Spalar, 20. mars 2015.

1503010

Aðalfundurinn verður haldinn föstudaginn 20. mars 2015.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu um skipan aðal- og varamanns á aðalfund Spalar sem haldinn verður þann 20. mars nk. kl. 11:00:
Aðalmaður: Stefán G. Ármannsson
Varamaður: Daníel Ottesen
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 6 atkvæðum.

5.Boðun XXIX. landsþings sambandsins.

1503011

Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dagsett 2. mars 2015.
Framlagt bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga þar sem boðað er til XXIX Landsþings sambandsins þann 17. apríl nk.
Kjörnir fulltrúar Hvalfjarðarsveitar á landsþing eru:
Aðalmaður: Björgvin Helgason, oddviti
Varamaður: Arnheiður Hjörleifsdóttir, varaoddviti

6.Minka- og refaeyðingar í Hvalfjarðarsveit.

1503016

Endurskoðun á fyrirkomulagi minka- og refaeyðingu í Hvalfjarðarsveit.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að fela landbúnaðarnefnd að taka til heildarendurskoðunar allt er varðar refa- og minkaeyðingu í sveitarfélaginu."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 6 atkvæðum.

7.Lántaka.

1503019

Lánssamningur við Landsbankann.
Framlagður lánssamningur milli Hvalfjarðarsveitar og Landsbankans hf. vegna lántöku að fjárhæð kr. 222,2 milljónir.
Oddviti bar upp eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir framlagðan lánssamning milli Hvalfjarðarsveitar og Landsbankans hf. Umrætt lán, kr. 222,2 milljónir, sem tekið er vegna fjármögnunar á ljósleiðaraverkefni sveitarfélagsins, er til 20 ára og ber 4,30% verðtryggða vexti. Lántökugjald er 0,6%. Lánið er án umfram- og uppgreiðslugjalds og án utanaðkomandi trygginga. Sveitarstjórn felur sveitarstjóra að undirrita lánssamninginn og tilheyrandi skjöl vegna lántökunnar"
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 6 atkvæðum.

8.Rekstraryfirlit janúar 2015.

1503017

Frá fjármálastjóra.
Rekstraryfirlit Hvalfjarðarsveitar fyrir janúarmánuð 2015 lagt fram til kynningar.

9.IGF - Sorp - framlenging á samningi

1501015

Frá Akraneskaupsstað, Borgarbyggð, Hvalfjarðarsveit og Skorradalshreppi.
Lagt fram til kynningar bréf framkvæmdastjóra Akraneskaupstaðar, Borgarbyggðar, Hvalfjarðarsveitar og oddvita Skorradalshrepps þar sem Íslenska gámafélaginu ehf. er tilkynnt um framlengingu samnings um sorphirðu um eitt ár eða til 31. ágúst 2016.

10.Tilkynning frá atvinnu- og nýsköpunarráðuneytinu um styrkveitingu til framkvæmda við göngustíga uppgræðslu og öryggisframkvæmdir við Glym í Botnsdal í Hvalfirði.

1406013

Iðnaðar- og viðskiptaráðherra hefur staðfest tillögu stjórnar Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða um fyrstu úthlutun sjóðsins á árinu 2015, 830.000 kr.
Bréf atvinnu- og nýsköpunarráðuneytisins lagt fram.
AH fagnaði úthlutun fjárstyrks til þessa brýna verkefnis og greindi hún m.a. frá því að áhersla varðandi úrbætur við Glym felist í endurbótum á göngustígum. Fundur er fyrirhugaður í næstu viku með landeigendum þar sem farið verður yfir framkvæmdir sumarsins.

11.Yfirlit yfir endanleg framlög jöfnunarsjóðs sveitarfélaga á árinu 2014.

1503008

Frá Jöfnunarsjóði.
Til kynningar lagt fram bréf Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um framlög sjóðsins til Hvalfjarðarsveitar á árinu 2014.

12.825. og 826. fundir Sambands íslenskra sveitarfélaga.

1503012

Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga lagðar fram til kynningar.

13.129. fundur Faxaflóahafna.

1503013

Fundagerðin lögð fram til kynningar.

14.Skýrsla sveitarstjóra.

1502013

Skúli Þórðarson, sveitarstjóri gerði grein fyrir helstu störfum sínum frá síðasta reglulega sveitarstjórnarfundi.

Fundi slitið - kl. 18:00.

Efni síðunnar