Fara í efni

Sveitarstjórn

188. fundur 13. janúar 2015 kl. 16:00 - 18:00 í stjórnsýsluhúsinu Innrimel 3
Nefndarmenn
  • Björgvin Helgason oddviti
  • Jónella Sigurjónsdóttir vararitari
  • Ása Helgadóttir aðalmaður
  • Stefán Ármannsson aðalmaður
  • Daníel Ottesen aðalmaður
  • Ólafur Ingi Jóhannesson 1. varamaður
  • Brynja Þorbjörnsdóttir 2. varamaður
Fundargerð ritaði: Skúli Þórðarson sveitarstjóri
Dagskrá
Arnheiður Hjörleifsdóttir og Hjördís Stefánsdóttir höfðu boðað forföll.

Björgvin Helgason oddviti setti fundinn og bauð sveitarstjórnarmenn velkomna til fundar og var síðan gengið til áður boðaðrar dagskrár.

1.Sveitarstjórn - 187

1412001F

Fundargerðin framlögð.

2.Rekstraryfirlit janúar - nóvember 2014.

1501007

Frá fjármálastjóra Hvalfjarðarsveitar.
Rekstraryfirlit janúar - nóvember 2014 lagt fram til kynningar.

3.Stjórnsýslukæra vegna framkvæmdaleyfis Bugavirkjunar, dags. 15. maí 2013.

1305037

Minnisblað vegna úrskurðar UUA í máli nr. 47/2013, frá Pacta og úrskurður Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála.
Til kynningar lagður fram úrskurður Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála frá 12. desember sl.
Úrskurðurinn er vegna áður framkominnar stjórnsýslukæru í tengslum við útgáfu framkvæmdaleyfis o.fl. af hálfu Hvalfjarðarsveitar v/ Bugavirkjunar.
Í forsendum úrskurðarins kemur fram að ákvörðun Orkustofnunar um útgáfu leyfis til miðlunarlóns hafi hvorki verið haldinn form- né efnisannmörkum og sé því lögmæt. Af þessum sökum hafi legið fyrir gilt leyfi Orkustofnunar þegar ákvarðanir sveitarstjórnar og byggingarfulltrúa Hvalfjarðarsveitar voru teknar um útgáfu framkvæmdar- og byggingarleyfis vegna Bugavirkjunar. Þá hafi framkvæmdir verið í samræmi við deiliskipulag Eystri-Leirárgarða, sbr. breytingar sem gerðar voru á því og tóku gildi 24. september 2012. Með vísan til þessa og að málsmeðferðin var að örðu leyti talin í samræmi við lög var kröfu kæranda um ógildingu ákvarðana hafnað og þar með fallist á málatilbúnað Hvalfjarðarsveitar og Orkustofnunar. Úrskurðurinn felur í sér að ákvörðun sveitarstjórnar og byggingarfulltrúa um útgáfu framkvæmda- og byggingarleyfis vegna Bugavirkjunar er talin lögmæt og stendur því óhögguð.

4.Auglýst eftir umsóknum til að taka að sér undirbúning og framkvæmd 28. Landsmóts UMFÍ árið 2017.

1501009

Erindi frá Ungmennafélagi Íslands.
Til kynningar lagt fram bréf UMFÍ þar sem auglýst er eftir umsóknum frá sambandsaðilum UMFÍ um að taka að sér undirbúning og framkvæmd 28. Landsmóts UMFÍ árið 2017.

5.47. fundur stjórnar Höfða hjúkrunar- og dvalarheimilis.

1501005

Fundargerðin framlögð.

6.823. fundur Sambands íslenskra sveitarfélaga.

1501006

Fundargerðin framlögð.

7.113. fundur stjórnar SSV, 3. desember 2014.

1501008

Fundargerðin framlögð.

Fundi slitið - kl. 18:00.

Efni síðunnar