Fara í efni

Sveitarstjórn

183. fundur 28. október 2014 kl. 16:00 - 18:00 í stjórnsýsluhúsinu Innrimel 3
Nefndarmenn
  • Björgvin Helgason oddviti
  • Hjördís Stefánsdóttir ritari
  • Jónella Sigurjónsdóttir vararitari
  • Ása Helgadóttir aðalmaður
  • Stefán Ármannsson aðalmaður
  • Daníel Ottesen aðalmaður
  • Ólafur Ingi Jóhannesson 1. varamaður
Fundargerð ritaði: Skúli Þórðarson sveitarstjóri
Dagskrá
Björgvin Helgason oddviti, setti fundinn og bauð sveitarstjórnarfólk velkomna til fundar og var síðan gengið til áður boðaðrar dagskrár.

1.Sveitarstjórn - 182

1409010F

Fundargerð framlögð.

2.Fræðslu- og skólanefnd - 113

1410002F

Fundargerð framlögð.
HS. ræddi bókun nefndarinnar varðandi húsnæðismál leikskólans Skýjaborgar og hvatti sveitarstjórn til að taka á málinu hið fyrsta.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn samþykkir að fela framkvæmda- og mannvirkjanefnd að leggja fyrir sveitarstjórn tillögur um framtíðarskipan húsnæðismála leikskólans Skýjaborgar."
Tillagan samþykkt samhljóða 7-0.

3.Styrktarsjóður Hvalfjarðarsveitar, október 2014.

1410049

Umsóknir í styrktarsjóðinn.
Fram lagðar umsóknir úr Styrktarsjóði Hvalfjarðarsveitar haustið 2014.
Alls bárust 14 styrkumsóknir.
Sveitarstjórn samþykkir að úthluta eftirtöldum styrkjum úr sjóðnum haustið 2014:
Hvalfjarðarklasinn v/ gerðar heimasíðu kr. 150.000-
Kór Saurbæjarprestakalls v/ starfsemi kr. 50.000-
Kór Saurbæjarprestakalls v/ tónleika og viðburða kr. 250.000-
Fimleikafélag Akraness v/ áhaldakaupa kr. 100.000-
Halldór Logi Sigurðarson v/ námsferðar kr. 20.000-
Alexandra Chernyshova v/ söngkeppni kr. 75.000-
Svandís Lilja Stefánsdóttir v/ keppnisferðar kr. 75.000-
Skákfélagið Hrókurinn v/starfsemi kr. 20.000-
Samtals úthlutun styrkja haustið 2014 kr. 740.000-
Tillagan samþykkt samhljóða 5-0.
Jónella Sigurjónsdóttir og Stefán Ármannsson véku af fundi við afgreiðslu þessa dagskrárliðar.

4.Viðauki 1 við fjárhagsáætlun 2014.

1410028

Frá Höfða, hjúkrunar- og dvalarheimili, dagsett 7. október 2014.
Erindi framlagt.

5.Varðandi ráðningu í starf framkvæmdastjóra Höfða.

1309031

Frá Umboðsmanni Alþingis, dagsett 17. október 2014.
Bréf Umboðsmanns Alþingis lagt fram til kynningar.

6.Til umsagnar frumvarp til laga um framhaldsskóla, 214. mál.

1410051

Frá Alþingi, dagsett 17. október 2014. Þegar sent félagsmálastjóra og form. fræðslu- og skólanefndar.
Erindi lagt fram til kynningar.

7.Til umsagnar frumvarp til laga um vegalög (gjaldtaka af umferð o.fl., EES-reglur), 157. mál.

1410052

Frá Alþingi, dagsett 17. október 2014. Þegar sent skipulagsfulltrúa og form. USN nefndar.
Erindi lagt fram til kynningar.

8.125. fundur stjórnar Faxaflóahafna sf.

1410048

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

9.820. fundur Sambands íslenskra sveitarfélaga.

1410053

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

10.12. og 13. fundir stjórnar Byggðasafnsins að Görðum og fjárhagsáætlun 2015.

1410059

Fundargerðirnar lagðar fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 18:00.

Efni síðunnar